Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir myndlistakona býr ásamt manni sínum og dóttur í Seattle í Bandaríkjunum. Þar er grasið ennþá grænt svo Áslaug brá á það ráð að klippa út snjókorn til skrauts út í glugga og komast í jólaskap um leið. Ynjur heilluðust af skrautinu sem okkur finnst ekki endilega eiga að einskorðast við jólin heldur geta hangið uppi allan veturinn til ánægju og yndisauka.
Áslaug var svo almennileg að taka gullfallegar myndir af snjókornaferlinu skref fyrir skref til að auðvelda okkur að gera eigin útfærslu og kunnum við henni bestu þakkir fyrir.
Myndir: Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir
Texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir























frida jons
1 Ár síðan
Mikið er þetta fallegt, man þegar við fjölskyldan vorum námsmenn í Florida þá var allt gert til að búa til Islenska jóla stemmingu í 30.stiga hitanum þar!
Auðbjörg Erlingsdóttir
1 Ár síðan
Mjög falleg snjókorn.
Og um leið – þá minnir þessi klippiaðferð á laufabrauðs-útskurðinn.
Fallegt og mjög vel gert.
Takk fyrir og gangi þér vel.