Áhugavert »
→ August 12, 2010
Sumrin nýtast vel til þess að ganga eða hlaupa úti við og ekki er verra ef hægt er að hlaupa í þágu samfélags -og mannúðarverkefna. Margar konur tóku þátt í kvennahlaupinu nú fyrr í sumar og þann 22.ágúst er hlaupið maraþon Íslandsbanka þar sem er hægt að hlaupa til styrktar ýmsum málefnum.
Við heyrum í nokkrum [...]
→ April 15, 2011
Kanínubollur eru gerðar úr vatnsdeigi og eru með vanillukremi inní. Þær eru æðislega góðar og alveg mátulega sætar. Þessi uppskrift er að Choc Eclairs sem er unaður með espresso eftir matinn. Aldeilis hægt að slá 2 flugur í einu höggi ef um matarboð með börnum og fullorðnum er að ræða og allir fá eftirrétt.
Þú þarft: [...]
→ March 29, 2011
Páskar eru uppáhalds. Frí til að liggja í leti og smjatta á góðgæti.
Við skreyttum og gerðum fínt fyrir páskana ***
→ March 28, 2011
Orðin eirðarlaus? Komin í svo pikkfasta rútínu að þú geispar ósjálfrátt yfir eigin spegilmynd? Vá það er komin tími til að hrista upp í þessu öllu saman. Héðan í frá er þér bannað að gera nokkurn einasta hlut á sama hátt hvern dag og hér eru góð ráð til þess að hjálpa þér!
1. Ný morgunrútína
Vakna, [...]
→ March 26, 2011
Líta þarf á möguleg einkenni um krabbamein með hæfilegu raunsæi. Ekki of mikilli afneitun og ekki heldur með móðursýki.
→ March 26, 2011
Til eru frægar manneskjur sem allir þekkja og eru sammála um að séu sérstaklega viðkunnalegar, farsælar og smitandi í velgengni sinni. Fólkið sem um ræðir er talað um að hafi mikla persónutöfra. Charisma er enska orðið yfir þennan persónueiginleika sem telst frekar sjaldgæfur, en er algengur meðal leiðtoga. Búi maður yfir miklum persónutöfrum er líkt og um segulmögnun sé að ræða. Annað fólk heillast og fylgir leiðtoganum.
→ February 16, 2011
Það er alger vitleysa að fjárfesta í dýrum mublum og græjum á þessum tímum og fyrir þá sem eiga ekki pening hvort sem er þá er það hugmynd sem er ansi langt frá raunveruleikanum hvort sem er. Það er samt engin ástæða til að láta heimilið drabbast niður. Það má gera ýmislegt fyrir tiltölulega litlar [...]
→ February 11, 2011
Vel hannað og skemmtilegt barnaherbergi er þroskandi ævintýraheimur sem ýtir undir bestu eiginleika barnsins þíns. Hugsaðu um hvað barnið þitt hneigist að. Vill það helst leika sér að því að kubba, teikna, föndra eða leika sér í ímyndunarleikjum með brúðum og hlutum? Reyndu að finna hugðarefnum barnsins rúm. Það eru ótal leiðir til þess að [...]