Ynjur huga að jólagjöfum.
Það er aldrei verra að þær séu handgerðar frá hjartanu en jafnframt ekki of flóknar í framkvæmd.
Hér er hugmynd sem býður upp á óendanlega skreytimöguleika og hentar öllum aldurshópum.
Þú þarft:
Tautúss (við notuðum Artline 750 fatatúss sem fæst í flestum bókabúðum).
Taumálning ( Deka fabric paint og fæst í Litir og föndur)
Bómullarefni ( þetta fékkst í Rúmfatalagernum)
Skæri
Nál og tvinna eða saumavél
Púðafyllir
Aðferð :
- Klipptu efnið í stærð og form að eigin vali.
- Byrjaðu á að teikna myndina eða mynstrið á efnið með blýanti nema þú hafir þeim mun meira sjálfstraust. Munið að gera ráð fyrir saumunum þegar þið teiknið.
- Strikaðu ofan í útlínurnar með fatatússinu.
- Málaðu ofan í myndina með taumálningunni.
- Láttu hana þorna og málaðu jafnvel á bakstykkið líka til þess að gefa púðanum aukið notagildi.
- Straujið myndirnar á röngunni til þess að festa málninguna og þá þolir púðinn þvott að 40 gráðum.
- Leggið stykkin saman réttu á móti réttu og saumið saman fyrir utan smá gat til þess að setja fyllinguna inn í púðann.
- Snúið púðaverinu við og saumið fyrir gatið.
Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir







Harpa Rut
1 Ár síðan
Þetta er sjúklega flott. Væri sko mjög til að gera svona með snillingunum en nenni ekki að sauma. Ætli einhver selji ódýra púða úr ólituðu bómullarefni? Bara pæling.
kolla
1 Ár síðan
Jú það ætti aldeilis að vera hægt. Mér dettur í hug að kaupa hvítt bómullarkoddaver og ódýran kodda til að setja inn í.Þá færðu líka stóran flöt til að mála á. IKEA,Rúmfatalagerinn…?
Bryndís Ýr
1 Ár síðan
Það er ekki að spyrja að því!
Harpa Rut Hilmarsdóttir
1 Ár síðan
Mér líst vel á. Spyr þig hvernig liti þegar ég er komin lengra sem ég vonan að ég komist.