Það muna flestir eftir smáhlutahillunum klassísku þar sem uppáhalds gullunum var raðað til að gleðja augað.
Mig dreymdi alltaf um svona hillu, þangað til um daginn að ég rambaði á eina í Kolaportinu og ákvað að gefa henni yfirhalningu.
Þú þarft:
Málningu í lit að eigin vali (ég notaði Flugger prufudós í lit nr. 13218)
Pensil
Límlakk
Pappír (gjafapappír í þessu tilfelli en það er hægt að nota nánast hvernig pappír sem er, dagblöð,glanstímarit,teiknimyndablöð)
Aðferð:
Hillan er þrifin, þurrkuð og síðan máluð. Ég sleppti því að mála kassana sem ég ætlaði að líma myndir inn í.
Pappírinn er sniðinn eftir hillunum.
Límlakk er borið á hillurnar og pappírnum komið fyrir.
Að lokum er uppáhalds fígúrunum raðað á nýja heimilið sitt.
Draumar geta ræst*
Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir















Jana
1 Ár síðan
Snilld! Ég á sko alveg örugglega eftir að poppa smámunahilluna mína upp!