→ January 31, 2011
Hér frískum við upp á par af hvítum sokkum á þrjá vegu.
Þú þarft:
Hvítt sokkapar ( við fengum okkar í Tiger)
Fatalit ( úr Þorsteini Bergman) – fatalitunarleiðbeiningar má finna hér
Blúndur eða skraut að eigin vali
Dúska – leiðbeiningar má finna hér
Aðferð:
Sokkarnir handlitaðir í potti (sjá litunarleiðbeiningar).
Blúndurnar voru saumaðar á í saumavél en einnig er hægt að sauma [...]
→ January 26, 2011
Ynjur missa ekki af mögnuðum kvenhetjum. Á frönsku kvikmyndahátíðinni er sýnd ævintýramyndin: “Ævintýri Adèle Blanc-Sec” í leikstjórn Luc Besson en sú mynd hefur fengið stórgóða dóma.
Adéle er kvenhetja sköpuð af Jacques Tardi – í teiknimyndasögum hans er hún rauðhærð orkumikil blaðakona sem leysir ráðgátur í byrjun tuttugustu aldar. Franski leikstjórinn Luc Besson færir sögu Adéle [...]
→ January 24, 2011
1. Hver er konan?
Ég er Lára Guðrún Jóhönnudóttir og er 27 ára gömul, nýbakaður kaffihúsaeigandi.
2. Hvaðan kemur hún?
Ég er Breiðholtsmær fram í fingurgóma en hjartað mitt á einnig heima á Vestfjörðum og austur undir Eyjafjöllum. Ég hef komið víðsvegar við, stúderað aðeins bókmenntafræði, kvikmyndafræði, unnið við blóðtökur á Landspítalanum og rekið fataverslun á Laugaveginum, en [...]
→ January 23, 2011
Howkapow! Við elskum nafnið á versluninni næstum jafnmikið og gotteríið sem þar fæst. Ekki er verra að verslunin styður við framsækna hönnuði hvaðanæva úr veröldinni. Í Howkapow er hægt að kaupa teikningar, límmiða, húsgögn, lampa og ýmislegt annað til heimilisins. Munirnir eru á breiðu verðbili og allir ættu að finna eitthvað við hæfi og [...]
→ January 18, 2011
Guðlaug Hermannsdóttir mælir með frábærum heimildamyndum fyrir þá sem vilja kynna sér áhrifamikla kvikmyndagerð um allt milli himins og jarðar.
→ January 9, 2011
Í janúar horfum við eins og guðinn Janus til fortíðar og framtíðar í senn. Hvað þurfum við að læra af fortíðinni til þess að auka á gæði lífs okkar? Sumum hentar ekki að horfa til baka og eru hvort sem er í fjórða gír áfram í farsæld. Öðrum er best að reyna betur. En áramótaheitin [...]
→ January 1, 2011
1. Hvítt
Hafðu augun opin fyrir klassískum, fallegum hvítum flíkum í fataskápinn. Þrátt fyrir að vorið verði litríkt tískusumar þá var hvíti liturinn ráðandi á sýningum Chloé, Celine og Dolce & Gabbana.
Mynd: Chloé vor/sumar 2011.
2. Sjöundi áratugurinn
Þrátt fyrir að meginreglan sé að kaupa klassískar flíkur á útsölum þá má vel hafa augin opin fyrir skemmtilegum flíkum [...]
→ December 23, 2010
Fyrir þá sem finnst gaman að pakka inn gjöfum getur innpökkunin næstum skipt jafn miklu máli og innihald pakkans.
Á jólunum er allt leyfilegt og að okkar mati er ekkert til sem heitir of skreyttur pakki. Hvort sem þú tilheyrir þeim klassísku eða “kitscí” í innpökkunardeildinni er um að gera að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn [...]
→ December 23, 2010
1. Augnskuggi
Nýr augnskuggi í hátíðarlit er einföld leið til að lífga upp á jólaútlitið
2. Fjaðrir
Ekki bara fyrir indíánaleiki, þó það gæti nú líka orðið skemmtilegt jólaþema. Fjaðrir í hárið eða í leðurband um hálsinn eru fallegar.
3. Hattur
Sterkur leikur til þess að draga fram mismunandi áhrif jólakjóla eða síðbuxna. Það virkar bæði með gamaldags blúndukjólum og [...]
→ December 22, 2010
Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir myndlistakona býr ásamt manni sínum og dóttur í Seattle í Bandaríkjunum. Þar er grasið ennþá grænt svo Áslaug brá á það ráð að klippa út snjókorn til skrauts út í glugga og komast í jólaskap um leið. Ynjur heilluðust af skrautinu sem okkur finnst ekki endilega eiga að einskorðast við jólin [...]