RSS


Í flokknum »DIY« Fylgstu með þessum flokki

Frískandi sokkar →  January 31, 2011 2

Hér frískum við upp á par af hvítum sokkum á þrjá vegu. Þú þarft: Hvítt sokkapar ( við fengum okkar í Tiger) Fatalit ( úr Þorsteini Bergman) – fatalitunarleiðbeiningar má finna hér Blúndur eða skraut að eigin vali Dúska – leiðbeiningar má finna hér Aðferð: Sokkarnir handlitaðir í potti (sjá litunarleiðbeiningar). Blúndurnar voru saumaðar á í saumavél en einnig er hægt að sauma [...]

Silkiborða hárskraut →  December 19, 2010 0

Það er óþarfi að hlaupa til og kaupa ný jólaföt frá toppi til táar á hverju ári. Fagurt hárband getur breytt ásynd þinni svo um munar. Hér snúa Ynjur á jólaköttinn og útbúa hárskraut úr silkiborðum. Þú þarft: Silkiborða í litum að eigin vali. Nál og tvinna. Hárband. Tölu eða blúndu til skrauts. Aðferð: Brjótið silkibandið saman í hálfgert blóm og saumið [...]

Handlitun 101 →  August 19, 2010 4

Það þarf ekki að vera flókið að hressa upp á fataskápinn með litlum tilkostnaði. Á fatamörkuðum sem eru auglýstir um allan bæ má finna sér notaðar og nýjar flíkur á spottprís og ef liturinn hentar ekki þá er afbragðsráð að lita flíkina og setja þar með persónulegan svip á hana í leiðinni. Ég  hef lumað á fatalitum [...]

Dúskað hálsskraut →  July 12, 2010 4

Oftast þarf ekki mikið til að lífga upp á einfaldan klæðnað. Sérstaklega ef þú ert hressandi dúskahálsmen sem getur breytt sér í í trefil á ögurstundu* Þú þarft: Garn Skæri Nál Aðferð: Vefðu garninu utan um fingurna á þér (sjá mynd). Þeim mun fleiri fingur sem þú þræðir utan um, þeim mun stærri dúskur og öfugt. Ef þú vilt hafa dúskinn mjög [...]

Hjólagreiðslur →  May 20, 2010 4

Þegar við erum mikið á ferðinni útivið það fullmikil fyrirhöfn að blása hárið á hverjum degi, slétta það eða krulla. Regn og vindur vinna sífellt á móti þér og þess vegna er liðað hár, fléttur og fallegir hnútar frábær lausn fyrir konur sem hafa mikinn tíma fyrir ævintýri en lítinn fyrir dútl og vesen.