RSS


Í flokknum »Greinar« Fylgstu með þessum flokki

Velkomin í fjölskylduna →  April 24, 2010 0

Nina og Kaya Egli eru konurnar á bak við fyrirtækið Family Affairs. Þær mæðgur sameina krafta sína í að hanna guðdómlegan fatnað fyrir konur og hafa báðar bakgrunn í tísku og hönnun.

Raunveruleikinn bítur →  April 20, 2010 0

Reality Bites er algjör snilldarmynd frá tíunda áratuginum. Winona Ryder og Ethan Hawk. Stór slurpukók með röri. Sígó og rómantík háskólaára. Gítarspil og drama. Þeir virtust nokkrir sækja innblástur í þennan tíma og þennan stíl, hönnuðirnir í útlöndum fyrir línur sínar í haust og vetur. Reimið á ykkur dr. Martens skóna Við ættum að fara á búðarrölt. [...]

Þungbúinn himinn →  April 20, 2010 0

Nei, það er engin ástæða til þess að láta rigninguna draga sig niður. Margar konur eiga hins vegar ekki almennileg föt sem þola þetta endalausa rigningaveður á Íslandi. En þá er bara að bæta úr. Lítið á það hvernig klæða má af sér drungann í úrhellinu.

Rokk af rokknum, ullarflíkur eru alltaf í tísku →  April 19, 2010 0

Það skiptir ekki máli hvort það er í tísku eða ekki. Á Íslandi er það einfaldlega glæpur að segja skilið við prjónaðar flíkur. Við vorum í hættu staddar fyrir nokkrum árum þegar flís tröllreið öllu en til allrar hamingju erum við aftur farnar að heyra glamrið í prjónunum.