Það er grátlegt hvað sokkabuxur eiga stuttan líftíma og ekki laust við að manni detti stundum í hug samantekin ráð sokkabuxnaframleiðenda. Hér snúum við á allar samsæriskenningar og gefum gömlu sokkabuxunum eilíft líf á þrjá vegu. Þú þarft: Gamlar sokkabuxur (hér er notast við barnasokkabuxur en auðvitað er tilvalið að nota “lykkjufallnar ” nælonsokkabuxur) Skæri Aðferð 1: Fléttuklútur Skálmarnar á sokkabuxunum [...]


