→ May 22, 2010
Netið er endalaus uppspretta innblásturs. Við erum hins vegar vanaföst og festumst í að skoða sömu innihaldslausu síðurnar. Við fáum skemmtilegar ábendingar frá Söru Stefánsdóttur upplýsingafræðingi hjá Háskóla Reykjavíkur um ýmis konar netdjásn sem er þess virði að halda upp á. Við gætum kannski kallað hana ij.Söru? (Internet Jockey...)
→ April 15, 2010
Bókin kenndi mér líka um nýja fleti á sjálfri mér og ég sá mikið af mér í Bjarti, ég á álíka erfitt og hann með að biðja fólk um aðstoð. Sjálfstæðið ofar öllu, ef þið skiljið hvað ég á við...
Þá er ég hrifin af þeirri bók sem ég las síðast: Votlendi er nýútkomin bók eftir Charlotte Roche og í raun mjög merkileg lesning. Ég veit í raun ekki hvort um er að ræða argasta klámrit eða ótrúlega mikilvægan lið í kvenfrelsisbaráttunni.