RSS
Læðst um baksviðs á Faust →  April 30, 2010 15

Ynjur fengu að fylgjast með sýningu Borgarleikhússins og leikhópsins Vesturports á endurgerð hans á Faust eftir Goethe og fengu líka að læðast baksviðs og fylgjast með ferlinu fyrir sýningu áður en þær settust í salinn og nutu sjónarspilsins. Við tókum leikkonurnar Unni Ösp og Nínu Dögg tali um sýninguna og væntanlega leikferð til London og rýnum í goðsagnir um djöfla og sálubrask

Skilaboð frá sálarsystrum →  April 23, 2010 0

Sálartónlistina má rekja til gospeltónlistar í Bandaríkjunum. Hjarta hennar er í Chicago og Detroit. Hún miðlar lífsreynslu og tilfinningum svartra og var einna vinsælust á sjötta áratugnum. Við þekkjum allar dívurnar, Dionne Warwick, Roberta Flack, Arethu Franklin og Shirley Bassey.  En hér teljum við upp nokkrar magnaðar sálarsystur sem eru ekki eins þekktar en gáfu [...]

Myrra Leifsdóttir →  April 19, 2010 0

Myrra Leifsdóttir er hæfileikarík listakona sem hefur ekki farið hefðbundna leið í námi heldur lært á lífsleiðinni og treyst aðstæðum.

Kynnist Lulu! →  April 19, 2010 0

Lulu deKwiatkowski er listakona sem hefur vakið mikla athygli fyrir textílhönnun sína. Hún er alin upp í ævintýralegu ríkidæmi og naut þess besta sem lífið hefur upp á að bjóða. Einkunnarorð Lulu eru enda: “Frelsið til að njóta gæða fegurðar í lífinu gefur því aðra vídd, það er eins og að geta flogið meðan aðrir [...]

Snærós Sindradóttir →  April 15, 2010 0

Bókin kenndi mér líka um nýja fleti á sjálfri mér og ég sá mikið af mér í Bjarti, ég á álíka erfitt og hann með að biðja fólk um aðstoð. Sjálfstæðið ofar öllu, ef þið skiljið hvað ég á við... Þá er ég hrifin af þeirri bók sem ég las síðast: Votlendi er nýútkomin bók eftir Charlotte Roche og í raun mjög merkileg lesning. Ég veit í raun ekki hvort um er að ræða argasta klámrit eða ótrúlega mikilvægan lið í kvenfrelsisbaráttunni.

Undraveröld Grace →  March 26, 2010 0

Til eru margir sem finnst tískuheimurinn óreiðukenndur heimur, fullur af fjasi og tilgerð, endurtekningu, græðgi og kaldrifjuðum viðskiptum. Anna Vintour ritstjóri Vogue er einmitt tákngervingur þeirrar ímyndar. En svo kemur Grace Coddington á sjónarsviðið og þeim sem líta tískuheiminn þessum augum hljóta að fallast hendur því hún er listakona sem engum dylst að trúir á fegurðina.

Norrænt, já takk! →  March 26, 2010 0

Norrænar myndir hafa löngum verið kvikmyndaframleiðendum og leikstjórum innblástur í risabransanum hið vestra og suður í Evrópu en hér á landi virðist áhuginn dræmur að minnsta kosti skipa bandarískar Hollywoodmyndir mestan sess í kvikmyndahúsum.