Í flokknum »Kvikmyndir«
→ July 2, 2010
Þið ykkar sem þolið ekki óhreinindi-hættið að lesa núna. Og þið ykkar sem eigið það til að slugsa við heimilisþrifin lærið ykkar lexíu og endilega lesið áfram um sorglegt og bókstaflega sóðalegt líf tveggja hefðarkvenna.
Frú Edith Bouvier Beale og dóttir hennar Edie, kallaðar stóra Edie og litla Edie voru náskyldar frænkur forsetafrúnnar Jacqueline Kennedy Onassis. [...]
→ March 26, 2010
Til eru margir sem finnst tískuheimurinn óreiðukenndur heimur, fullur af fjasi og tilgerð, endurtekningu, græðgi og kaldrifjuðum viðskiptum. Anna Vintour ritstjóri Vogue er einmitt tákngervingur þeirrar ímyndar.
En svo kemur Grace Coddington á sjónarsviðið og þeim sem líta tískuheiminn þessum augum hljóta að fallast hendur því hún er listakona sem engum dylst að trúir á fegurðina.
→ March 26, 2010
Norrænar myndir hafa löngum verið kvikmyndaframleiðendum og leikstjórum innblástur í risabransanum hið vestra og suður í Evrópu en hér á landi virðist áhuginn dræmur að minnsta kosti skipa bandarískar Hollywoodmyndir mestan sess í kvikmyndahúsum.