Í flokknum »hversdags«
→ May 13, 2010
Bollurnar smakkast dásamlega nýbakaðar með smjöri og svo er tilvalið að frysta rest (ef einhver er) til að eiga í vinnu eða skólanesti, nú eða lautarferð á góðum degi.
Í þessari uppskrift byrjum við á því að laga dýrindis hafragraut sem síðan er settur saman við deigið.
Uppskriftin gefur u.þ.b. 16 bollur
Hafragrautur:
1 epli
2 dl vatn
2 [...]
→ May 2, 2010
Þessar pönnukökur eru oftast kenndar við Ameríku en við kjósum að tengja þær við sunnudagssælu.
Hrærð egg,nýkreistur safi og ferskt ávaxtasalat á líka einstaklega vel með þeim. Í morgunmat, hádeginu eða á kvöldin, þú velur.
Pönnukökurnar
2 bollar hveiti
4 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
2 egg
4 msk sykur
1 – 1 1/2 bolli mjólk
4 msk bráðið smjör
Aðferð:
Blandið öllum þurrefnunum saman í [...]
→ April 14, 2010
Þessi eplakaka er mjúk og yndisleg, en ótrúlega einföld og yfirleitt á maður allt í hana. Þess vegna er hún hversdags. Það toppar ekkert kvöldkaffi sem samanstendur af þessari eplaköku, Earl Grey tei og húslestri eða huggulegu spjalli.
→ April 12, 2010
Hvert hérað á Ítalíu hefur sína sérstöku pizzafyllingu en alltaf er þó ostur og tómatar aðaluppistaðan í fyllingunni. Pizzur frá Napólí innihalda ansjósur, ólífur og ostinn má spara.
Pizza Napólí handa 6 manns:
Deig:
Eitt bréf af þurrgeri
500 gr. hveiti
3 dl volgt vatn
1/2 dl ólívuolía
1/2 tsk salt
Sósa:
1/2 dl ólívuolía
5 marin hvítlauksrif
2 dósir af tómötum
2-3 msk tómatmauk
1 smátt saxaður [...]