Í flokknum »Eftirmatur«
→ April 15, 2011
Kanínubollur eru gerðar úr vatnsdeigi og eru með vanillukremi inní. Þær eru æðislega góðar og alveg mátulega sætar. Þessi uppskrift er að Choc Eclairs sem er unaður með espresso eftir matinn. Aldeilis hægt að slá 2 flugur í einu höggi ef um matarboð með börnum og fullorðnum er að ræða og allir fá eftirrétt.
Þú þarft: [...]
→ December 21, 2010
Rommkúlur eru gómsætar súkkulaðikúlur, fylltar með dessertrommi og kókos. Þær eiga rætur að rekja til Austurríkis og þeir sem hafa farið þangað í skíðaferðir gætu kannast við þetta vandaða konfekt. Ég kannast einungis við rommkúlurnar úr ísnum sem móðir mín útbýr ávallt við hátíðleg tilefni og mæli óhikað með honum.
Rommkúluís
2 eggjarauður
2 heil egg
125 g [...]
→ November 30, 2010
Harpa Pétursdóttir gefur lesendum Ynjunetsins tvær, einfaldar uppskriftir að jólakonfekti.
„Þetta mjög einfaldar uppskriftir sem má útfæra á svo marga skemmtilega vegu,“ segir Harpa. „Allt eftir því hvað hverjum sýnist. Einfalt og ekki tímafrekt, ekta fyrir uppteknar mæður og konur sem vilja þó vera húslegar og bjóða upp á heimatilbúið konfekt um jólin.“
Súkkulaðiteningar:
600 gr. 70% súkkulaði
Salthnetur
Pistasíur
Lakkrískurl
Súkkulaðið [...]
→ October 3, 2010
Þetta heita og freiðandi súkkulaði er svo ljúffengt að manni er skapi næst að synda í því.
Stútfullt af andoxunarefnum og lækningarmætti leyfum við okkur að fullyrða.
Dýfum okkur til sunds!
Þú þarft:
6 dl mjólk
2 1/2 msk. vatn
2 1/2 msk. hrásykur
100 gr. suðusúkkulaði
Aðferð:
Setjið mjólkina, vatnið og sykurinn saman í pott og hitið á miðlungshita uns sykurinn [...]
→ August 28, 2010
Þessi uppskrift er í miklu uppáhaldi vegna þess hversu einföld, bragðgóð og fljótleg hún er í alla staði.
Tilvalið er að nota þessa grunnuppskrift og skipta um bragðefni. Setja til dæmis uppáhaldssúkkulaðið í staðinn fyrir bláber, skipta út berjategund og svo framvegis.
Kökurnar:
Uppskrift að u.þ.b. 16 kökum.
150 g. smjör (ósaltað)
2 dl. hrásykur
2 egg
3 dl. [...]
→ May 2, 2010
Þessar pönnukökur eru oftast kenndar við Ameríku en við kjósum að tengja þær við sunnudagssælu.
Hrærð egg,nýkreistur safi og ferskt ávaxtasalat á líka einstaklega vel með þeim. Í morgunmat, hádeginu eða á kvöldin, þú velur.
Pönnukökurnar
2 bollar hveiti
4 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
2 egg
4 msk sykur
1 – 1 1/2 bolli mjólk
4 msk bráðið smjör
Aðferð:
Blandið öllum þurrefnunum saman í [...]