RSS


Í flokknum »Ynja vikunnar« Fylgstu með þessum flokki

Ynja vikunnar: Frú Vigdís Finnbogadóttir →  October 25, 2010 2

Ynja vikunnar frú Vigdís Finnbogadóttir um að vera ógift: „...Ég hef hingað til komist af í opinberu lífi, veislum og öðrum samkomum, án herra mér við hlið.“

Ynja vikunnar: Magdalena Carmen Frida Kahlo y Calderón →  July 20, 2010 0

Ynja vikunnar er Magdalena Carmen Frida Kahlo y Calderón! Þessi mexíkóska listakona var fædd í júlí og er okkur ofarlega í huga meðan sólin skín og allir litir eru skærir.  Hún þróaði sérstakan stíl þar sem hún blandaði saman táknum, raunsæi og súrrealisma. Meðal þekktustu verka hennar eru sjálfsmyndir málaðar á ýmsum tímum í lífi hennar, [...]

Ynja vikunnar: Kleópatra →  June 21, 2010 0

Kleópatra er ynja vikunnar því hún er okkur enn þann daginn í dag mikill innblástur. Hún þótti aðlaðandi tálkvendi, fjörug og gáfuð. Hún var vel menntuð, talaði mörg tungumál og þótti bera af í stjórnkænsku. Kleópatra ríkti sem drottning Egyptalands í tuttugu ár og er fræg fyrir útsjónarsemi sína í að verjast ágangi Rómverja og eldheit [...]

Ynja vikunnar: Karen Blixen →  May 25, 2010 0

Karen Blixen fékk aldrei nóbelsverðlaun en átti þau fyllilega skilið að mati menningarmafíunnar. Hún er ynja vikunnar.

Ynjur vikunnar: Geimskutlur →  March 26, 2010 0

Ynjur vikunnar eru þær hundruðir kvenna hafa sóst eftir því að fljúga út í geim. Aðeins 40 hafa komist alla leið. Fordómar, fáviska og úreld viðhorf réðu því að konur fengu ekki að fljúga út í geim fyrr en seint og síðar meir. Hér er stiklað á stóru í geimferðasögu kvenna. Munið þessar konur. 






Ynja vikunnar: Kristína Svíadrottning →  March 15, 2010 0

Kristína er líklega einn vanmetnasti þjóðhöfðingi allra tíma. Henni tókst að binda enda á 30 ára stríðið á skömmum tíma. Hún nam stjörnufræði og efnafræði, var fim skylmingarkona og talaði fimm tungumál reiprennandi frá unga aldri . Hún varð ástfangin af konum jafnt sem karlmönnum og drap frægan franskan heimspeking fyrir slysni...og þetta er bara byrjunin.