Sigríður Sif Gylfadóttir er 32 ára jarðeðlisfræðingur og forritari, áhugakona um prjón og ljósmyndun og nýliði í Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík. Sigga Sif bauð okkur heim í huggulega íbúð í Vesturbænum og við spjölluðum um áhugamálin yfir kaffi. Sigga hefur gaman af því að fletta gömlum sníða- og prjónablöðum til þess að fá hugmyndir og á rokk [...]


