Í flokknum »Hönnun«
→ February 16, 2011
Það er alger vitleysa að fjárfesta í dýrum mublum og græjum á þessum tímum og fyrir þá sem eiga ekki pening hvort sem er þá er það hugmynd sem er ansi langt frá raunveruleikanum hvort sem er. Það er samt engin ástæða til að láta heimilið drabbast niður. Það má gera ýmislegt fyrir tiltölulega litlar [...]
→ January 23, 2011
Howkapow! Við elskum nafnið á versluninni næstum jafnmikið og gotteríið sem þar fæst. Ekki er verra að verslunin styður við framsækna hönnuði hvaðanæva úr veröldinni. Í Howkapow er hægt að kaupa teikningar, límmiða, húsgögn, lampa og ýmislegt annað til heimilisins. Munirnir eru á breiðu verðbili og allir ættu að finna eitthvað við hæfi og [...]
→ July 23, 2010
Fatahönnuðurinn Hlín Reykdal hefur á stuttum tíma aflað sér góðs orðstírs fyrir fagra fylgihluti svo sem slaufur og hálsmen.
Síðasta vetur kynnti Hlín nýja fylgihlutalínu fyrir börn. Í henni er að finna litríkar slaufur, mjúk hárbönd og húfur. Við heimsóttum Hlín á vinnustofu hennar í miðbænum þar sem móðir hennar og faðir halda heimili og hafa [...]
→ April 16, 2010
Vorið er komið og dagarnir fullkomnir til hjólreiða. Hjólið ættirðu að geta notað langt fram á veturinn, einna helst þarftu að huga að því að hlífa því fyrir veðuröflunum og umhverfinu.
“Veðrið og umhverfið fer illa með hjól sem standa úti. Efni setjast utan á þau og skemma. Kaplar og keðjan ryðga og eyðileggjast. Gott viðhald [...]
→ March 12, 2010
Í barnastærðum er sýning sem veitir innsýn í heillandi heim hönnunar fyrir börn. Sýningargestir á öllum aldri kynnast leikföngum og húsgögnum sem sérstaklega eru hönnuð fyrir börn og sækja innblástur í leiki þeirra og hugmyndaheim. Bæði verður sýnd íslensk og alþjóðleg hönnun en eitt af meginmarkmiðum sýningarinnar er að skoða verk íslenskra hönnuða. Mikill hluti [...]