→ May 26, 2010
Aukaplássið í garðinum getur gefið þér mikla ánægju. Útiveru, jarðtengingu og hálfgerða hugleiðslu við að róta í moldinni, vökva og að lokum að njóta lífræns heimaræktaðs grænmetis.
Ef þú átt aukapláss í garðinum væri ekki vitlaust að stinga þar upp og setja góða mold, búa til matjurtagarð og njóta lífsins næringar og lystisemda.
Kryddgarðurinn
Matjurtagarðar geta verið ýmiskonar. [...]
→ April 17, 2010
Margir búa í eldra húsnæði með stórum, gömlum pottofnum sem eru oftast lítið augnayndi. Þeir verða fljótt óþrifalegir og stundum er á þeim margra ára lag af málningu í alls kyns litum. Hvað er hægt að gera? Og hvað má gera við ljóta ísskápinn sem þú keyptir til bráðabirgða í Góða hirðinum fyrir lítinn pening?
→ April 12, 2010
Það er fátt sem minnir frekar á vorið en fagur fuglasöngur.
Hér búum við til lokkandi fuglanammi sem allir græða á.
Við skreytum trén, goggarnir éta sig sadda og við fylgjumst með og gleðjum augu og eyru um leið.
Þú þarft:
300 gr. palmin
7-8 dl fuglafræ
piparkökuform
bökunarplötu
band
grillpinna
Aðferð:
Bræðið feitina í potti og setjið fuglafræin út í. Hellið blöndunni í kökuformin á [...]
→ March 22, 2010
Hvernig má laga glæsilegan, skreyttan og góðan latte eða cappuccino bolla? Kaffibarþjónn frá kaffismiðjunni sýnir okkur réttu handtökin.