RSS
Komdu við í Viðey →  July 10, 2010 0

Það er fátt eins notalegt og að skipta um takt og leyfa nýjum og gömlum stöðum að heilla sig upp úr skónum. Í sumarfríinu er oftast meira en nóg um að vera í skipulögðum útilegum og ferðum út á land að upplifa stemmningu annara plássa. Stundum eigum við samt  til að leita langt yfir skammt í [...]

Regnbogahúsgögn →  July 5, 2010 3

Oftast þarf ekki mikið til að fríska upp á “lúin” húsgögn og ef það er eitthvað sem ég stenst ekki þá er það prufumálning  í öllum regnboganslitum. Þessi barnahúsgögn litu ágætlega út fyrir utan túss og vatnslitaslettur en nú hafa þau fengið hressilegra útlit með málningu og nýjum sessum. Þú þarft: Prufumálningadósir í litum að eigin vali. Ef [...]

Lýðveldisrellur →  June 16, 2010 4

Lýðveldið Ísland á afmæli á morgun og því tilvalið að klippa aðeins og líma því til heiðurs. Þessar einföldu rellur gleðja unga sem aldna og koma öllum í sannkallað hátíðarskap* Þú þarft: Þykkan pappír og /eða litríkan Límstifti (ef þú vilt líma  pappír saman til þess að fá þykktina) Skæri Heftara Hamar Nagla (betra að hafa þá svolítið langa svo rellan snúist auðveldlega, ég [...]

Smáhlutahillan upp á nýtt →  June 11, 2010 1

Það muna flestir eftir smáhlutahillunum klassísku þar sem uppáhalds gullunum var raðað til að gleðja augað. Mig dreymdi alltaf um svona hillu, þangað til um daginn að ég rambaði á eina í Kolaportinu og ákvað að gefa henni yfirhalningu. Þú þarft: Málningu í lit að eigin vali (ég notaði Flugger prufudós í lit nr. 13218) Pensil Límlakk Pappír (gjafapappír í þessu [...]

Sleikjóís →  May 26, 2010 3

Kaldir litlir íspinnar með sumarbragði. Frábærlega hressandi á sólardegi og fullt af C-vítamíni og andoxunarefnum fyrir húðina. 3-4 bollar af frosnum berjum (hindberjum hér) maukað í matvinnsluvél 1 bolli af sætum safa, apríkósu eða Goji berry safi eru góðir 3 msk. Agave síróp klakamót Snittupinnar eða einhver góð prik Maukinu er klesst ofan í klakaboxin og snittupinnunum stungið í. Látið í [...]

Orkukubbar með berjaslúbbi →  May 19, 2010 9

Orkukubbar með berjaslúbbi er heimatilbúið milli-mála-snarl og algjörlega tilvalið fyrir krakka (og fullorðna) á ferð og flugi. Börn, næring og skipulag. Þau eru þreytt og orkulaus eftir skóla og leikskóla seinnipartinn. Hausinn á þeim rykkist fram og aftur og til hliðar og þau ranghvolfa augunum og væla út af einhverju sem þau eru samt búin að gleyma [...]

Korkar →  May 7, 2010 1

Á flestum heimilum er í það minnsta ein óskilgreind skúffa sem sogar að sér allt “draslið” sem þú veist ekki hvar á að geyma. Bréfaklemmur,gúmmíteygjur, eldspýtur, kennaratyggjó, teiknibólur, kasetta með Red hot chilli peppers og kannski korktappar. Móðir mín hefur geymt kampavínskorktappa ásamt nokkrum venjulegum í skúffu í eldhúsinu í mörg ár. Ég man eftir að hafa [...]

Fuglanammi →  April 12, 2010 3

Það er fátt sem minnir frekar á vorið en fagur fuglasöngur. Hér búum við til lokkandi fuglanammi sem allir græða á. Við skreytum trén, goggarnir éta sig sadda og við fylgjumst með og gleðjum augu og eyru um leið. Þú þarft: 300 gr. palmin 7-8 dl fuglafræ piparkökuform bökunarplötu band grillpinna Aðferð: Bræðið feitina í potti og setjið fuglafræin út í. Hellið blöndunni í kökuformin á [...]

Í barnastærðum – Íslensk og alþjóðleg hönnun fyrir börn →  March 12, 2010 0

Í barnastærðum er sýning sem veitir innsýn í heillandi heim hönnunar fyrir börn. Sýningargestir á öllum aldri kynnast leikföngum og húsgögnum sem sérstaklega eru hönnuð fyrir börn og sækja innblástur í leiki þeirra og hugmyndaheim. Bæði verður sýnd íslensk og alþjóðleg hönnun en eitt af meginmarkmiðum sýningarinnar er að skoða verk íslenskra hönnuða. Mikill hluti [...]