RSS


Í flokknum »DIY« Fylgstu með þessum flokki

Handmálaðir púðar →  November 11, 2010 4

Ynjur huga að  jólagjöfum. Það er aldrei  verra að þær séu handgerðar frá hjartanu en jafnframt ekki of flóknar í framkvæmd. Hér er hugmynd sem býður upp á óendanlega skreytimöguleika og hentar öllum aldurshópum. Þú þarft: Tautúss (við notuðum Artline 750 fatatúss sem fæst  í flestum  bókabúðum). Taumálning ( Deka fabric paint og fæst í Litir og föndur) Bómullarefni [...]

Vélmennagerð →  September 1, 2010 2

Það er í raun ótrúlegt hvað við hendum miklu dagsdaglega á meðan langflest sem við kaupum kemur í umbúðum sem má hæglega gefa framhaldslíf á einn eða annan hátt. Hildur Ísdal Þorgeirsdóttir er sniðug og uppfinningasöm móðir tveggja drengja, þeirra Hilmars Snæs 5 ára og Hrafns Goða 8 mánaða. Nýverið safnaði hún ásamt Hilmari, allskonar hlutum sem [...]

Regnbogahúsgögn →  July 5, 2010 3

Oftast þarf ekki mikið til að fríska upp á “lúin” húsgögn og ef það er eitthvað sem ég stenst ekki þá er það prufumálning  í öllum regnboganslitum. Þessi barnahúsgögn litu ágætlega út fyrir utan túss og vatnslitaslettur en nú hafa þau fengið hressilegra útlit með málningu og nýjum sessum. Þú þarft: Prufumálningadósir í litum að eigin vali. Ef [...]

Lýðveldisrellur →  June 16, 2010 4

Lýðveldið Ísland á afmæli á morgun og því tilvalið að klippa aðeins og líma því til heiðurs. Þessar einföldu rellur gleðja unga sem aldna og koma öllum í sannkallað hátíðarskap* Þú þarft: Þykkan pappír og /eða litríkan Límstifti (ef þú vilt líma  pappír saman til þess að fá þykktina) Skæri Heftara Hamar Nagla (betra að hafa þá svolítið langa svo rellan snúist auðveldlega, ég [...]

Smáhlutahillan upp á nýtt →  June 11, 2010 1

Það muna flestir eftir smáhlutahillunum klassísku þar sem uppáhalds gullunum var raðað til að gleðja augað. Mig dreymdi alltaf um svona hillu, þangað til um daginn að ég rambaði á eina í Kolaportinu og ákvað að gefa henni yfirhalningu. Þú þarft: Málningu í lit að eigin vali (ég notaði Flugger prufudós í lit nr. 13218) Pensil Límlakk Pappír (gjafapappír í þessu [...]