Í flokknum »Topp 10«
→ September 13, 2010
1. Farðu í gönguferð.
Teiknaðu eða skrifaðu lista yfir hluti sem þú finnur á gangstéttinni.
2. Skrifaðu bréf til þín í framtíðinni.
Trúðu þér jafnvel fyrir leyndarmáli eða einhverju sem þér finnst mjög mikilvægt þessa stundina.
3. Keyptu blöðrur og skreyttu umhverfið þitt með þeim án sérstaks tilefnis.
Blöðrur gleðja undantekningarlaust.
4. Settu uppáhalds nammið þitt neðst í töskuna [...]
→ August 31, 2010
1. Þróaðu með þér nætursjón:
Ef þú getur farið lipurlega um í myrkri verður lífið á fróni öllu léttara og orkureikningarnir lægri.
2. Borðaðu nóg af súkkulaði:
Og hafðu orkubúskapinn í hámarki. Þannig safnarðu á þig hlýju lagi af spiki eins og selur í köldum sjó og þolir vel að lækka hjá þér hitann meðan þú hefur það [...]
→ August 11, 2010
1. Hlauptu
Hlauparar eru gæðablóð, að minnsta kosti á Íslandi. Í ágústmánuði er orðin hefð að hlaupa til styrktar góðum málefnum. Láttu ekki þitt eftir liggja og reimaðu á þig skóna. Dagsetningin er 21.ágúst. Skráðu þig á marathon.is.
2.Menningarnótt
Reykjavík breytist í stórborg nokkrum sinnum á ári. Á menningarnótt er ótalmargt í boði. Við ætlum að kíkja í [...]
→ July 29, 2010
1. Áfangastaðurinn!
Hvort sem áfangastaðurinn er sódóma gómorra eða lítil laut í Hvalfirði þarf að vanda áfangastaðinn vel um verslunarmannahelgina. Ölvað gítarspil til klukkan 7 um morguninn er ekki allra og það eru heldur ekki glaðvakandi börn sem í sakleysi sínu kljúfa þynnkuheila eins og samúræjar. Farðu með börnin á barnvænan áfangastað þar sem áfengi er [...]