Í flokknum »Afþreying«
→ December 1, 2010
Það er hluti af aðventunni að rölta um bæinn, skoða í búðarglugga og láta sig dreyma.
Desember er hafin, búðargluggarnir í Reykjavík skarta sínu fegursta og ynjur mynduðu nokkra sem gætu jafnvel veitt innblástur af skreytingum heimavið.
Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir
→ November 2, 2010
Topp 10 leiðir til að endurræsa kerfið
1. Farðu í nýtt nám.
Sjávarlíffræði, matvælafræði, leikstjórn, bútasaumur og vistvænn arkitektúr. Farðu þínar eigin leiðir því þú græðir mest á því að læra um það sem þú hefur mestan áhuga á.
2. Stígðu út úr þægindahringnum
Gerðu eitthvað upp á þitt einsdæmi og helst eitthvað sem krefst hugrekkis. Gakktu í fjallgönguklúbb, taktu flugtíma, lærðu fótbolta [...]
→ October 21, 2010
1. Góður varasalvi
Bleikrauði varasalvinn frá Vaseline þykir okkur pottþéttur. Hann heldur vörunum mjúkum og svo er liturinn rósbleikur og fallegur.
2. Heitt kakó
Dökkt súkkulaði í bolla frá Green og Blacks bræðir önugustu sál. Prófið að setja örlítið af hunangi út í og ekki gleyma þeyttum rjóma.
3. Háir sokkar
Þú þarft ekki að fjárfesta í rándýrum [...]
→ October 20, 2010
Hjörtu í kaffibollanum, þanginu og steinunum, andlit í tyggjóklessu, mynstur, blóm og allskonar augnablik.
Ekki gleyma að horfa niður, það gæti glatt þig.
Myndir: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir