RSS

»kristjana«

Kristjana Guðbrandsdóttir  |  kristjana@ynja.net  |  111 posts



Húsgögn eiga 9 líf

Húsgögn eiga 9 líf

→  August 13, 2011 0

Handlagna fagurkera dreymir oft um að gefa gömlum húsgögnum nýtt líf. Þau geta orðið verulega falleg ef rétt er að verki staðið. Ef að viðurinn í húsgögnunum sem stendur til að gera upp er heill og góður er hægt að gera þau upp sem ný. Það sem þarf til er þolinmæði, góðar hugmyndir og réttu tækin [...]

Matarbloggið: Í anda Lucille Ball

Matarbloggið: Í anda Lucille Ball

→  August 7, 2011 0

Við rákumst á matarbloggið The Pioneer Woman á dögunum. Síðuna rekur meistarinn hún Ree sem segist vera aðþrengd eiginkona, sem búi í sveit og lifi í anda Lucille Ball, Vivien Leigh og Etherl Merman. Heljarinnar mix af konum í eldmóð og hún er líklegast ekki að ýkja. Á síðunni er að finna heilmikið af mataruppskriftum sem [...]

Í spilun: Konkylie

Í spilun: Konkylie

→  August 7, 2011 0

Í Saints Go Machine eru hljómborðsleikarinn Jonas Kenton, trommuleikarinn Silas Moldenhawer sem báðir eru áhugamenn um hústónlist, jassistinn og sálartónlistarmaðurinn Simon Mushinsky og söngvarinn kúnstugi Nikolaj Manuel Vonsild. Sveitin semur danskt draumapopp og hljómurinn er nýstárlegur. Síðasta plata þeirra kom út í júní og heitir Kynkolie. Hér er lagið Add Ends af  Konkylie. Fallegt lag og [...]

Topp 10 leiðir til að rugla í rútínunni

Topp 10 leiðir til að rugla í rútínunni

→  March 28, 2011 0

Orðin eirðarlaus? Komin í svo pikkfasta rútínu að þú geispar ósjálfrátt yfir eigin spegilmynd? Vá það er komin tími til að hrista upp í þessu öllu saman. Héðan í frá er þér bannað að gera nokkurn einasta hlut á sama hátt hvern dag og hér eru góð ráð til þess að hjálpa þér! 1. Ný morgunrútína Vakna, [...]

Ungar konur og krabbamein

Ungar konur og krabbamein

→  March 26, 2011 0

Líta þarf á möguleg einkenni um krabbamein með hæfilegu raunsæi. Ekki of mikilli afneitun og ekki heldur með móðursýki.

Heimurinn stígur til hliðar

Heimurinn stígur til hliðar

→  March 26, 2011 0

Til eru frægar manneskjur sem allir þekkja og eru sammála um að séu sérstaklega viðkunnalegar, farsælar og smitandi í velgengni sinni. Fólkið sem um ræðir er talað um að hafi mikla persónutöfra. Charisma er enska orðið yfir þennan persónueiginleika sem telst frekar sjaldgæfur, en er algengur meðal leiðtoga. Búi maður yfir miklum persónutöfrum er líkt og um segulmögnun sé að ræða. Annað fólk heillast og fylgir leiðtoganum.

Öðruvísi barnaherbergi

Öðruvísi barnaherbergi

→  February 11, 2011 0

Vel hannað og skemmtilegt barnaherbergi er þroskandi ævintýraheimur sem ýtir undir bestu eiginleika barnsins þíns. Hugsaðu um hvað barnið þitt hneigist að. Vill það helst leika sér að því að kubba, teikna, föndra eða leika sér í ímyndunarleikjum með brúðum og hlutum? Reyndu að finna hugðarefnum barnsins rúm. Það eru ótal leiðir til þess að [...]

Ævintýrakonan Adéle

Ævintýrakonan Adéle

→  January 26, 2011 0

Ynjur missa ekki af mögnuðum kvenhetjum. Á frönsku kvikmyndahátíðinni er sýnd ævintýramyndin: “Ævintýri Adèle Blanc-Sec” í leikstjórn Luc Besson en sú mynd hefur fengið stórgóða dóma. Adéle er kvenhetja sköpuð af Jacques Tardi – í teiknimyndasögum hans er hún rauðhærð orkumikil blaðakona sem leysir ráðgátur í byrjun tuttugustu aldar. Franski leikstjórinn Luc Besson færir sögu Adéle [...]

Konur sem gera: Lára Guðrún nýbakaður kaffihúsaeigandi

Konur sem gera: Lára Guðrún nýbakaður kaffihúsaeigandi

→  January 24, 2011 1

1. Hver er konan? Ég er Lára Guðrún Jóhönnudóttir og er 27 ára gömul, nýbakaður kaffihúsaeigandi. 2. Hvaðan kemur hún? Ég er Breiðholtsmær fram í fingurgóma en hjartað mitt á einnig heima á Vestfjörðum og austur undir Eyjafjöllum. Ég hef komið víðsvegar við, stúderað aðeins bókmenntafræði, kvikmyndafræði, unnið við blóðtökur á Landspítalanum og rekið fataverslun á Laugaveginum, en [...]

Vefverslun mánaðarins: HOWKAPOW

Vefverslun mánaðarins: HOWKAPOW

→  January 23, 2011 0

Howkapow! Við elskum nafnið á versluninni næstum jafnmikið og gotteríið sem þar fæst. Ekki er verra að verslunin styður við framsækna hönnuði hvaðanæva úr veröldinni. Í Howkapow er hægt að kaupa teikningar, límmiða, húsgögn, lampa og ýmislegt annað til heimilisins. Munirnir eru á breiðu verðbili og allir ættu að finna eitthvað við hæfi og [...]