RSS

»kolla«

Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir  |  kollikanill@hotmail.com  |  57 posts



Frískandi sokkar

Frískandi sokkar

→  January 31, 2011 2

Hér frískum við upp á par af hvítum sokkum á þrjá vegu. Þú þarft: Hvítt sokkapar ( við fengum okkar í Tiger) Fatalit ( úr Þorsteini Bergman) – fatalitunarleiðbeiningar má finna hér Blúndur eða skraut að eigin vali Dúska – leiðbeiningar má finna hér Aðferð: Sokkarnir handlitaðir í potti (sjá litunarleiðbeiningar). Blúndurnar voru saumaðar á í saumavél en einnig er hægt að sauma [...]

Allir fá þá eitthvað fallegt

Allir fá þá eitthvað fallegt

→  December 23, 2010 2

Fyrir þá sem finnst gaman að pakka inn gjöfum getur innpökkunin næstum skipt jafn miklu máli og innihald pakkans. Á jólunum er allt leyfilegt og að okkar mati er ekkert til sem heitir of skreyttur pakki. Hvort sem þú tilheyrir þeim klassísku eða “kitscí” í innpökkunardeildinni er um að gera að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn [...]

Snjókorn

Snjókorn

→  December 22, 2010 2

Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir myndlistakona býr ásamt manni sínum og dóttur í Seattle í Bandaríkjunum. Þar er grasið ennþá grænt svo Áslaug brá á það ráð að klippa út snjókorn til skrauts út í glugga og komast í jólaskap um leið. Ynjur heilluðust af skrautinu sem okkur finnst ekki endilega eiga að einskorðast við jólin [...]

Hátíðlegur rommkúluís

Hátíðlegur rommkúluís

→  December 21, 2010 0

Rommkúlur eru gómsætar súkkulaðikúlur, fylltar með dessertrommi og kókos. Þær eiga rætur að rekja til Austurríkis og þeir sem hafa farið þangað í skíðaferðir gætu kannast við þetta vandaða konfekt. Ég kannast einungis við rommkúlurnar úr ísnum sem móðir mín útbýr ávallt við hátíðleg tilefni og mæli óhikað með honum. Rommkúluís 2 eggjarauður 2 heil egg 125 g [...]

Silkiborða hárskraut

Silkiborða hárskraut

→  December 19, 2010 0

Það er óþarfi að hlaupa til og kaupa ný jólaföt frá toppi til táar á hverju ári. Fagurt hárband getur breytt ásynd þinni svo um munar. Hér snúa Ynjur á jólaköttinn og útbúa hárskraut úr silkiborðum. Þú þarft: Silkiborða í litum að eigin vali. Nál og tvinna. Hárband. Tölu eða blúndu til skrauts. Aðferð: Brjótið silkibandið saman í hálfgert blóm og saumið [...]

Demantur í litla Skerjafirðinum

Demantur í litla Skerjafirðinum

→  December 16, 2010 0

Í pínulitlu bakhúsi við snoturt hús á Hörpugötu 10 leynist gimsteinn. Þar hafa vinkonurnar Fríða Jónsdóttir og Þórdís Sigurðardóttir opnað litla verslun með úrvali fallegra hluta sem gleðja augað. Þarna leynast  notaðar  “vintage” flíkur, allt frá töskum, skóm og fylgihlutum  í glæsilega kjóla og yfirhafnir. Fyrir utan sérvaldar flíkur bjóða þær stöllur einnig upp á falleg [...]

Prjónaðir gleðigjafar

Prjónaðir gleðigjafar

→  December 11, 2010 4

Hér höfum við hugmynd af prjónaðri gjöf sem getur gengið kynslóðanna á milli. Hæfileikarík handverkskona sem vildi þó ekki láta nafns síns getið, prjónaði þessar fallegu fígúrur til að gefa heppnum börnum í jólagjöf. Sumum gæti þótt nóg  nota myndirnar sem innblástur að eigin útfærslu á meðan öðrum finnst betra að styðjast við uppskriftirnar. Hvort heldur sem er [...]

Vinnustofan:Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

Vinnustofan:Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

→  December 2, 2010 0

Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur er ýmislegt til lista lagt.Hún er söngkona hljómsveitarinnar FM Belfast sem vinna nú að sinni annari plötu en auk þess myndskreytir hún bækur og tímarit, býr til hár og tannskúlptúra, setur upp sýningar og safnar allskonar tönnum svo eitthvað sé nefnt. Lóa Hlín  er bara nýbyrjuð að nota Hlínarnafnið aftur vegna þess [...]

Jólagluggar

Jólagluggar

→  December 1, 2010 1

Það er hluti af aðventunni að rölta um bæinn, skoða í búðarglugga og láta sig dreyma. Desember er hafin, búðargluggarnir í Reykjavík skarta sínu fegursta og ynjur mynduðu nokkra sem gætu jafnvel veitt innblástur af skreytingum heimavið. Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir

10 kransar á bakka

10 kransar á bakka

→  November 28, 2010 9

Ertu ekki búin að útbúa aðventukrans? Örvæntu ei því að kransar þurfa alls ekki að vera flókið fyrirbæri. Hér notum við tekkbakka, 4 kubbakerti og allskonar dót sem finna má á flestum heimilum. 10 kransar á bakka: Nr. 1 Ætur (en samt ekki) Galdurinn er að skreyta með nammi sem er ekkert alltof vinsælt en gerir þó eitthvað  [...]