Um okkur
Ynja útgáfa er eigandi Ynjunet.is og Ynja.net. Tímaritið Ynja.net hóf göngu sína í septembermánuði 2009 og í apríl 2010 færðist heimilisfang okkar á Ynjunet.is.
Ynjunet er net íslenskra kvenna sem veitir gæðaefni fyrir konur. Á hverjum degi. Eitthvað sem þær geta lagst yfir og lesið. Fengið hugmyndir eða hlegið.
Það er okkar von að heimsókn á Ynjunet.is verði lítil hamingjustund fyrir hverja konu. Augnablik sem hún getur hlakkað til.
Ynjur hugsa, framkvæma og eru lífsglaðar. Takk fyrir að vera með okkur ***
- Kristjana Guðbrandsdóttir
- Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir
- Arna Ösp Guðbrandsdóttir
Ljósmyndir og höfundaréttur – vinsamlegast athugið!
Myndirnar, sem birtast á þessum vef, eru eign Ynjunet.is, en ljósmyndararnir sem þær tóku, eiga höfundarréttinn. Hægt er að kaupa mynd til birtingar eða annarra nota og sér Ynjunet um söluna.
Ljósmyndarinn okkar Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir svarar fyrirspurnum um myndefni og sölu gegnum netpóst á kolla@ynjunet.is.





