Topp 10 góð kaup á útsölum

January 1st, 20119:41 pm @ kristjana

0


Topp 10 góð kaup á útsölum

1. Hvítt

Hafðu augun opin fyrir klassískum, fallegum hvítum flíkum í fataskápinn. Þrátt fyrir að vorið verði litríkt tískusumar þá var hvíti liturinn ráðandi á sýningum Chloé, Celine og Dolce & Gabbana.

Mynd: Chloé vor/sumar 2011.

2. Sjöundi áratugurinn

Þrátt fyrir að meginreglan sé að kaupa klassískar flíkur á útsölum þá má vel hafa augin opin fyrir skemmtilegum flíkum í anda sjöunda áratugarins. Sanfestingar, síðir kjólar og síðbuxur með víðum skálmum eins og Marc Jacobs boðaði á sýningu sinni með fötum í anda Stúdíó 54.

Mynd: Marc Jacobs vor/sumar 2011.

3. Hlébarðamynstur

Það dettur seint úr tísku og því nokkuð öruggt að veðja á fínlegar flíkur skreyttar hlébarðamynstri. Veðjaðu á skyrtu eða kjól.

Mynd: Dolce & Gabbana haust/vetur 2010.

4. Gallafatnaður

Gallafatnaður er klassískur og getur líka verið verulega töff. Óvenjulegir gallajakkar, gallaskyrtur og buxur. Reynið að vera ekki of fyrirsjáanleg. Það eru allir í niðurmjóum, þröngum gallabuxum. Finnið eitthvað annað fallegt.

Mynd: Snejana Onopka í Cover, janúar 2011.

5. Góðir, klassískir skór

Skór eru svo dýrir að ef þú ætlar að kaupa eitthvað eitt, veldu þá skó. Það eru bestu kaupin. Festu kaup á klassískum götuskóm, hlaupaskóm og mundu eftir sumrinu og keyptu þér skó með opinni tá til að geyma fram að vori.

6. Falleg taska

Sjáir þú fallega tösku á útsölu skaltu fá þér eina slíka. Sér í lagi ef þú átt ekki góða tösku og trúir að hún muni fylgja þér í einhvern tíma.

7. Svartur kjóll

Audrey Hepburn gerði litla svarta kjólinn ódauðlegan í Breakfast at Tiffany´s. Við erum þó meira til í að keyra upp kynþokkann- minna af fjöðrum og dúlli, meira af kynþokka.

Mynd: Balenciaga haust/vetur 2010 + Audrey Hepburn í BT.

8. Klassísk kápa

Kápur eru fokdýrar en það er alger nauðsyn að eiga eina slíka. Nema að þú sért rokkari, þá færðu þér auðvitað leðurjakkann sem þig langar í.

Mynd: whyred.com

9. Síðbuxur

Allir er að gera það. Það er að segja, klæðast síðbuxum. Finndu þér þitt snið.

Mynd: Síðbuxur á útsölu á www.whyred.com

10. Litríkir og fínlegir bolir

Þú notar þá óhóflega mikið, það veistu, en þrátt fyrir það þá eru þetta oft þín síðustu kaup. Leitaðu að fallegum bolum til að nota við leggings, stutt pils og gallabuxur.