Topp 10 litlir hlutir sem lífga upp á jólaútlitið

December 23rd, 201010:28 am @ arna

0


Topp 10 litlir hlutir sem lífga upp á jólaútlitið

1. Augnskuggi

Nýr augnskuggi í hátíðarlit er einföld leið til að lífga upp á jólaútlitið

2. Fjaðrir

Ekki bara fyrir indíánaleiki, þó það gæti nú líka orðið skemmtilegt jólaþema. Fjaðrir í hárið eða í leðurband um hálsinn eru fallegar.

3. Hattur

Sterkur leikur til þess að draga fram mismunandi áhrif jólakjóla eða síðbuxna. Það virkar bæði með gamaldags blúndukjólum og eins rúllukragabol og buxum. Stíll á stundinni.

4. Náttkjóll

Það þótti sérstaklega flott og nýtt og rataði á síður helstu tískutímarita heimsins þegar íslenskar stúlkur uppgötvuðu tískumátt náttkjólsins aftur sem dagklæðnaðar. Fríða frænka, Rokk og rósir og helstu second hand búðir bæjarins selja gamla kjóla eins og þennan og þeir eru alveg gjaldgengir yfir hátíðarnar.

5. Klútur

Í hár eða um háls, um þig miðja eða samofinn gömlu pilsi. Það er hægt að nota klúta til að búa til algerlega nýja flík úr gamalli eða sem litríkt munstrað mótvægi við einlitan kjól.

6. Pels

Ef þú átt pels þarftu nú ekkert að örvænta. Það er allt sem þú þarft. Sérstaklega í þessum kulda.

7. Sokkabuxur

Í fallegum lit, kóral eða hafbláum, gamaldagsgulum eða jólarauðum. Ein einfaldasta leiðin til þess að skapa nýja stemmingu í kringum gamalt dress.

8. Varalitur

Líkt og sokkabuxurnar þarf eiginlega ekki neitt nema nýjan óvæntan lit sem breytir öllu. Hvað með neon?

9. Sokkar og skór

Ógurlega fallegt og gengur upp í nær öllum mögulegum samsetningum af sokkagerðum, litum og munstrum með fallegum skóm

10. Hárskraut

Fallegt hárskraut er höfuðprýði og allt sem þú þarft til að fara ekki í jólaköttinn.

Gerðu þitt eigið. Kolla sýnir hér hvernig það er gert.