Það er óþarfi að hlaupa til og kaupa ný jólaföt frá toppi til táar á hverju ári. Fagurt hárband getur breytt ásynd þinni svo um munar.
Hér snúa Ynjur á jólaköttinn og útbúa hárskraut úr silkiborðum.
Þú þarft:
Silkiborða í litum að eigin vali.
Nál og tvinna.
Hárband.
Tölu eða blúndu til skrauts.
Aðferð:
Brjótið silkibandið saman í hálfgert blóm og saumið í höndunum eða í saumavél (það gæti reyndar reynst erfitt að sauma það í saumavél þar sem blómið er svolítið þykkt svona samanbrotið)
Búið til annað blóm í öðrum lit eða látið eitt duga.
Skreytið með blúndu eða tölu sem er saumuð á í höndunum.
Að lokum er skrautið fest á hárbandið.
Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir















December 19th, 2010 → 7:14 pm @ kolla
0