Hátíðlegur rommkúluís

December 21st, 201011:13 am @ kolla

0


Hátíðlegur rommkúluís

Rommkúlur eru gómsætar súkkulaðikúlur, fylltar með dessertrommi og kókos. Þær eiga rætur að rekja til Austurríkis og þeir sem hafa farið þangað í skíðaferðir gætu kannast við þetta vandaða konfekt. Ég kannast einungis við rommkúlurnar úr ísnum sem móðir mín útbýr ávallt við hátíðleg tilefni og mæli óhikað með honum.

Rommkúluís

2 eggjarauður

2 heil egg

125 g sykur

1/2 lítri rjómi

250 g rommkúlur

Aðferð:

Sykur, eggjarauður og heilu eggin eru þeytt saman þar til þau verða létt og ljós.Þá er stífþeyttum rjómanum bætt í og rommkúlunum, sem hafa verið muldara í matvinnsluvél. Þessu er öllu blandað vel saman en varlega þó. Sett í form og komið fyrir í frysti í minnst 4 klukkutíma, gjarnan lengur.

* Ath. Nauðsynlegt er að hræra reglulega í ísnum á meðan hann er að frjósa. Bæði til þess að fá fallega áferð og líka til að koma í veg fyrir að rommkúlurnar setjist allar á botninn.*

Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir