Topp 10 leiðir til að endurræsa kerfið
1. Farðu í nýtt nám.
Sjávarlíffræði, matvælafræði, leikstjórn, bútasaumur og vistvænn arkitektúr. Farðu þínar eigin leiðir því þú græðir mest á því að læra um það sem þú hefur mestan áhuga á.
2. Stígðu út úr þægindahringnum
Gerðu eitthvað upp á þitt einsdæmi og helst eitthvað sem krefst hugrekkis. Gakktu í fjallgönguklúbb, taktu flugtíma, lærðu fótbolta eða á mótorhjól. Þú veist ekki hvers þú ert megnug fyrr en þú reynir.
3. Breyttu matarvenjunum svo um munar.
Ef þú ert föst í leiðindarútínu skaltu prófa að ferðast svolítið í eldhúsinu. Frakkland í október og S-Afríka í nóvember. Hvað fá íbúar S-Afríku sér í morgunmat?
4. Slökktu á sjónvarpinu og stattu upp úr sófanum.
Skokkaðu út og skelltu þér í kvöldsund og heita gufu. Klæddu þig í silkigallann, settu hárið í hnút og þig í stellingar, náðu í risastór teikniblöð, liti og blekpenna og láttu vaða. Farðu út með myndavélina og taktu myndir í slyddu og regni eða bakaðu ævintýralegar kökur í nestið á morgunn.
5. Hugsaðu stórt.
Farðu í skemmtilegt og óhefðbundið frí í miðri kreppunni. Sumarhús í Færeyjum- sveitavilla á Ítalíu? Athugaðu hvort fleiri vinir vilja með. Safnaðu svo fyrir ferðinni með því að segja upp öllum óþarfa eins og til dæmis 24 rásum af sjónvarpsstöðvum, kaffi latté annan hvern dag og rándýrum snyrtivörum sem þú þarft ekkert á að halda. Haltu markaði með vinkonum og seldu heitar lummur, málaða bolla og skrautlegar muffins.
6. Vertu ástfangin af sjálfri þér
Það að elska sjálfa sig hefur ekkert að gera með hroka og sjálfumgleði heldur kærleika og virðingu fyrir lífinu. Horfðu aldrei í spegilinn með gagnrýnum augum. Neitaðu þér um það og þú verður frjáls. Æfðu þig á hverjum degi.
7. Morgunstund gefur gull í mund.
Þeir sem geta tileinkað sér þá speki verða vísir og farsælir. Við B-manneskjurnar getum gert þetta líka! En bara ef við fáum okkar stund til að velta okkur upp úr dagdraumum og drama í þessum knappa ramma sem okkur er gefinn.
8. Ekki dvelja í drunga.
Allir eiga vini sem sjá aldrei neitt jákvætt við lífið eða sig sjálfa. Reglan er að eigir þú einn slíkan vin, þarftu þrjá á móti til að gefa þér gleði og sólskin.
9. Gefðu gjafir-stanslaust
Þær þurfa ekki að vera innpakkaðar með stórum slaufuborða. Hugmyndir og greiðar eru gjafir sem alltaf gagnast.
10. Eignastu nýja vini
Vinum á ekki að skipta út eins og ónýtum hlutum. En það er gaman að því að bæta í hópinn spennandi fólki. Að eignast nýja vini gerir þig víðsýna og vitra.



November 2nd, 2010 → 10:16 am @ kristjana
0