Litrík klæði hönnuð af Alber Eaz hjá Lanvin munu fást í verslunum H&M víðsvegar um heim þriðjudaginn 23.nóvember.
Lanvin tískuhúsið sér um stjörnurnar og þær létu sig heldur ekki vanta í partý sem H&M hélt til þess að kynna línuna. Sofia Coppola, Emma Roberts, Alexander Wang og Tory Burch mættu og horfðu á fyrirsætur stika eftir pöllunum með púðluhunda í bandi. Fötin eru litrík, stelpuleg og í anda áttunda áratugarins og Cyndi Lauper. Rykktar ermar, bleikir, gulir og rauðir litir, fallegur pelsjakki og dömuleg kápa. Allt eru þetta flíkur sem myndu sóma sér á rauðum dregli.
LANVIN FOR H&M – THE NEW YORK EVENT from Barracuda Film & TV on Vimeo.


















November 20th, 2010 → 12:19 pm @ kristjana
0