Konur sem gera:Una Lorenzen

November 2nd, 201011:40 pm @ kolla

1


Konur sem gera:Una Lorenzen

Una Lorenzen hefur í nógu að snúast í listinni. Hún lærði grafíska hönnun í LHÍ og vann mikið meðfram því við að teikna myndir af menntaskólakrökkum fyrir árbækur eins og Faunu í MR. Lokaverkefnið hennar var hreyfimyndin “Heimur Jóns bónda” sem ferðaðist víða á hátíðir. Una ákvað svo að læra animation og fékk MFA í experimental animation úr California Institute of the Arts árið 2009.

Í dag starfar hún sjálfstætt sem hreyfimyndasmiður. Hún  hefur gert nokkrar stuttmyndir sjálf en líka mörg tónlistamyndbönd og hreyfimyndir fyrir heimildamyndir. Síðasta vetur flutti Una  frá LA til New York s en er nú staðsett tímabundið í Montreal í Canada. Una fékk listamanna visa til að vera í Bandaríkjunum og það gildir í 3 ár.

Hefur einhverntíman komið til greina að verða eitthvað annað en listakona?

Nei. Ég er ein af þeim sem var alltaf í mínum eigin heimi að teikna…það hefur lítið breyst.

Hvað ertu að fást við núna?

Er að klára nokkur spennandi verkefni. Þrjú tónlistamyndbönd fyrir Daníel Bjarnason hjá Bedroom Community. Animation fyrir stuttmynd eftir leikstjóra í New York og eitt myndband fyrir tónlistakennara í LA. Gaman að geta dreyft sér víða.

Áttu þér fyrirmyndir í listinni?

Þeir sem hafa “masterað” einfaldleikann og sinn eigin myndræna heim. Bakvið þennan einfaldleika liggur flókinn og langur vegur.

Hvað gerir þig hamingjusama?

Að vera sátt í sjálfri mér. Ég held að ég sé sáttust þegar ég er full af innbæstri og hef nóg að áhugaverðum verkefnum að vinna að. Þá gef ég af mér bestu orkuna sem endurkastast svo af mínum nánustu.

Besta ráð sem þú hefur fengið?

“Taktu pásu” alltaf jafn gott ráð, sama hversu oft ég heyri það.

Hvaðan færðu innblástur?

Þegar ég tek pásu, fæ mér göngutúr, sé góða myndlist, les góða sögu, horfi á góða teiknimynd eða jafnvel auglýsingu og fleira og fleira.

Hvernig er dæmigerður dagur hjá þér?

Þegar ég er í vinnutörn (sem er eiginlega alltaf) verða dagarnir því miður pínu keimlíkir, en í mínum eigin skapandi heimi er allskonar að gerast en það sést ekki nema á tölvuskjánum eða á blaðinu.Ég hef ekki þörf fyrir að hamast út um allt á daginn en einhverskonar líkamsrækt er alveg nauðsynleg, hlaup, labb eða jóga.

Er mikil samkeppni í þessum geira?

Ég get ekki sagt það. Það eru allir að gera sína hluti. Fólk kemur bara til mín ef það vill minn stíl.

Áttu þér draumaverkefni?

Draumaverkefnið er held ég núna að vinna að nýjustu myndinni minni, sem er narratív saga. Ég er nú þegar búin að fá gott fólk til liðs við mig, en hingað til hef ég verið full þrjósk við að gera allt ein. Svo er ég dálítið spennt fyrir meiri hönnunarvinnu eins og til dæmis hreyfilógó.

Hvert stefnir þú?

Að stofna eigið fyrirtæki og fá mér framleiðanda.

Hvað er á döfinni?

Hreyfimynda auglýsing fyrir íslenskan viðskiptavin og svo er ég með nýja stuttmynd í bígerð.

Hér má sjá kynningarmyndband sem Una vann fyrir uppistandsstelpur.

Title sequence for “Stand up girls” from UNA LORENZEN on Vimeo.

Heimsíðu Unu er að finna hér.

Sýnishorn af verkum Unu.