Endurnýting og afslappað andrúmsloft

November 26th, 20102:48 pm @ kolla

0


Endurnýting og afslappað andrúmsloft

Í huggulegri íbúð á Eggertsgötu býr hann Úlfur Guðmundsson 2 og hálfs árs ásamt Selmu Hauksdóttur mömmu sinni og pabba sínum Guðmundi Sæmundssyni .
Litla fjölskyldan stækkaði við sig fyrir nokkru og Úlfur var svo heppin að fá sérherbergi sem hann er hæstánægður með.

Selma segist hafa endurnýtingu í huga þegar hún raðaði og valdi hluti inn í herbergi sonar síns og bendir um leið á að það sé óþarfi að hlaupa alltaf út í búð og kaupa nýjasta nýtt af öllu.
Margt í herberginu er fengið frá foreldrum hennar, úr geymslunni hjá ömmu og á nytjamörkuðum, þar sem hún finnur bæði leikföng og föt á Úlf. Selmu finnst  mikilvægt að andrúmsloftið í barnaherberginu sé afslappað. “Þó að þetta sé barnaherbergi þarf ekki að hafa allt í skærum litum og veggina málaða í lit”. Hún segist  óvart hafa fléttað appelsínugult þema inn í herbergið með gardínunum, hillunni og mottunni en
mestu máli skiptir að Úlfur sefur mjög vel og leikur sér glaður í notalega herberginu sínu.

Ynjur fengu að líta inn til Úlfs þar sem gömlu og nýju er gert jafn hátt undir höfði og hagkvæmar og sniðugar lausnir eru á hverju strái.


Uppáhald Úlfs 2 og hálfs árs:


Leikfang: Bósi Ljósár

Bók: Pétur og Úlfurinn og Bókin um farartækin

Litur: Blár

Lag: Lagið um fiskana tvo

Matur: Hakk & Spagetti

Skemmtilegast að gera: Leika og þá sérstaklega leika úti

Ætlar að verða: Slökkviliðsmaður

*Selma heldur úti skemmtilegu bloggi með humyndum og innbæstri fyrir heimilið: Heimili og hönnun

Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir