Harpa Pétursdóttir gefur lesendum Ynjunetsins tvær, einfaldar uppskriftir að jólakonfekti.
„Þetta mjög einfaldar uppskriftir sem má útfæra á svo marga skemmtilega vegu,“ segir Harpa. „Allt eftir því hvað hverjum sýnist. Einfalt og ekki tímafrekt, ekta fyrir uppteknar mæður og konur sem vilja þó vera húslegar og bjóða upp á heimatilbúið konfekt um jólin.“
Súkkulaðiteningar:
600 gr. 70% súkkulaði
Salthnetur
Pistasíur
Lakkrískurl
Súkkulaðið er brætt yfir vatnsbaði. Því er síðan hellt á smjörpappír á bökunarplötu og slétt úr því. Þá dreifir maður yfir súkkulaðið hverju sem manni dettur í hug. Ég setti á helminginn salthnetur og pistasíur, hefði allt eins mátt vera saxaðar möndlur og pistasíur, já eða hvaðeina. Á hinn helminginn setti ég salthnetur og lakkrískurl. Það kemur skemmtilega á óvart hversu vel lakkrískurlið passar með salthnetunum. Eins má setja sykraðan appelsínubörk eða engifer en ég hef lært að það sem er mest borðað eru salthnetur, pistasíur og lakkrískurlið þótt hitt sé vissulega fallegt. Síðan er þetta skorið í teninga og virkar sem fínasta konfekt framborið.
Súkkulaðitrufflur:
1,5 kg súkkulaði
250 gr smjör
900 ml rjómi
Dass af salti
Súkkulaðið er brotið niður í stórt fat eða skál, yfir það er smjörið bútað niður og dreift yfir. Rjóminn er settur í pott og suðan látin koma upp. Þegar rjóminn er sjóðandi heitur er honum hellt yfir súkkulaðið og smjörið og það látið standa í sirka fimm mínútur. Yfir þetta er síðan stráð smá salti. Þetta er svo hrært og þá ætti súkkulaðið og smjörið að vera orðið nægilega bráðið til að allt hrærist vel saman. Þessi bráð er síðan látin standa í 3 klst í ísskáp. Þegar bráðin er orðin vel kæld er lítið mál að gera úr henni kúlur, sérstaklega ef melónukúlari er við höndina sem ég reyndar hafði ekki. Kúlunum er síðan velt upp úr hverju sem hugurinn girnist. Ég átti nóg af salthnetum sem ég hakkaði mjög smátt. Ég átti líka hakkaðar heslihnetur og svo gott bökunarkakó. Ég velti kúlunum upp úr þessum þremur tegundum og er hæst ánægð með útkomuna. Þetta setti ég síðan allt í frysti til að geyma fram að jólum en ég sé að áður en trufflurnar eru borðaðar þarf að láta þær þiðna vel, það er ekki hægt að grípa þær beint úr frystinum, þær þurfa að ná stofuhita til að vera sem bestar.



arna
1 Ár síðan
Nahamm hvað þetta er girnilegt!
Inga Stella
1 Ár síðan
Þetta er svo fallegt og girnilegt … þetta verður klárlega prófað á mínu heimili fyrir jólin