Blúndur eru rómantískar og fallegar og það þykir okkur tilvalin blanda fyrir einfalt jólaskraut.
Jólaskraut sem þú kemst jafnvel upp með að nota allan ársins hring.
Þú þarft:
Blúndu að eigin vali ( hvíta blúndan er úr Rúmfatalagernum en sú bleika úr Kolaportinu)
Límlakk
Pensil
Skæri
Þráð
Aðferð :
Leggðu blúnduna á blað og límlakkaðu yfir hana.
Leyfðu henni að stífna aðeins og losaðu hana frá pappírnum.
Hengdu hana til þerris á snúru.
Þegar blúndan hefur stífnað er hægt að klippa hana í form að vild og þræða að lokum band til að hengja hana upp.
Það er líka hægt að spreyja eða mála blúnduna í öðrum lit.
* Við höfum heyrt að það sé einnig hægt að stífa með undanrennu.
Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir











Serafina
1 Ár síðan
Gömul aðferð var að nota sykurupplausn.
kolla
1 Ár síðan
Já það er einmitt ein leiðin til viðbótar*
Harpa Rut Hilmarsdóttir
1 Ár síðan
Vohóhó… meira að segja ég treysti mér í þetta. En hvar kaupi ég svona límlakk?
kolla
1 Ár síðan
Já þetta er eitthvað sem allir geta dundað sér við. Ég fékk mitt límlakk í heildsölu sem heitir Ísey en ég held að þú fáir svona lakk í Litir og föndur, Skólavörubúðinni og jafnvel bókabúðum líka.
Auður
1 Ár síðan
hvað heitir límlakkið sem þú notar?
Kolla
1 Ár síðan
Það heitir Creall Découpage og er matt*
Áðan rakst ég svo á límlakk í litlum umbúðum í Litir og föndur á Skólavörðustíg…gæti verið sniðugt ef þú þarft ekki að nota mikið.
Juldekorera med spets | DIY or DIE
1 Ár síðan
[...] isländska Ynja har man gjort fina juldekorationer av stärkt [...]