10 kransar á bakka

November 28th, 201010:25 pm @ kolla

9


10 kransar á bakka

Ertu ekki búin að útbúa aðventukrans? Örvæntu ei því að kransar þurfa alls ekki að vera flókið fyrirbæri. Hér notum við tekkbakka, 4 kubbakerti og allskonar dót sem finna má á flestum heimilum.

10 kransar á bakka:

Nr. 1 Ætur (en samt ekki)

Galdurinn er að skreyta með nammi sem er ekkert alltof vinsælt en gerir þó eitthvað  fyrir augað. Þetta lakkrískonfekt er skemmtilegt á litinn en er alls ekki allra.Mín vegna mætti lakka það og eiga svo árum skipti.

Nr. 2 Bílakrans

Getur verið hvaða dót sem er. Bílarnir urðu fyrir valinu að þessu sinni.

Nr. 3 Íkon og perlur

María mey og perlurnar úr skartgripaskríninu passa ágætlega saman.

Nr. 4 Babúskur

Margir luma á babúskum heima hjá sér. hér koma þær að góðum notum.

Nr. 5 Diskó

Hér er öllu glansi og glimmeri hrúgað saman í hressandi diskókrans.

Nr. 6 Gull og postulín

Gull, rautt og hvítt er klassísk jólalitablanda. Postulínsstúlka og gylltar jólakúlur eru einföld lausn.

Nr. 7 Playmo

Playmo heillar alla aldurshópa.

Nr. 8 Örkin hans Nóa

Engin skilin útundan.

Nr. 9 Englar og prjál

Postulínsengill og skartgripaskrínið tæmt í kring.

Nr. 10 Sá hefðbundni

Þessi er alltaf klassískur. Greni, könglar og ber.

Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir