30 ár eru liðin frá því að Vigdís Finnbogadóttir tók við embætti forseta Íslands. Fyrst kvenna til að vera kjörin í embætti þjóðhöfðingja. Hún sat í embætti í heil sextán ár eða til ársins 1996.
Vigdís er sú kona, fyrir utan okkar eigin mæður og ömmur, sem mest hefur mótað líf okkar og sjálfsmynd. Á Íslandi uxum við úr grasi og áttum okkur margar þann draum að verða eins og Vigdís. Úti um allan heim vakti kjör hennar athygli og varð öðrum konum hvatning til að láta að sér kveða.
Við Ynjur söknum hennar úr forsetaembætti því Vigdís hrópaði ekki húrra fyrir útrásarvíkingum eða bruggaði ráð gegn pólitískum andstæðingum heldur tengdi við menningararfinn og fór fremur með ljóð en úrdrátt úr ársreikningum.
Þegar Vigdís var kjörin í embætti fyrir meira en þrjátíu árum síðan þá var hér á landi mikið pungasamfélag og hún gerir ekki lítið úr því þegar hún rifjar upp æviminningar sínar. Vigdís hefur sagt byltingu hafa orðið í afstöðu kvenna í dag en minnir þó á að það nái engri átt að enn séum við stundum álitnar annars flokks þegnar.
Hún er Ynja vikunnar vegna þess að:
Hún var kona í prjónakjól með völd. Hlý, mjúk og ljós í ferköntuðu og dökku karlasamfélagi. Það voru engar reglur og því gat hún búið þær til sjálf. Hún hafði frelsi til að færa kvenlæga mýkt inn í formfastan, einhæfan og karllægan heim. Hún var ljósið í myrkrinu. Bókstaflega. Eins og sést á myndinni hér til hliðar.
Við erum henni sérstaklega þakklátar fyrir að hafa verið frjálsleg í fasi og gefið okkur pláss til að hreyfa okkur í sem leiðtogar og stjórnendur. Að vísu finnst okkur við oft hafa farið illa með frelsið eða hverju sætir að konur velja að pakka sér inn í dökkbláar dragtir og verja karlasamfélagið og launamun kynjanna? Við þráum að sjá kvenleiðtoga dagsins í dag skapa sér meira frelsi. Og jú líka í klæðaburði. Öll tjáning skiptir máli. Talsmáti, klæðnaður og fas. Kannski verður næsti kvenforseti okkar útivistarpæja í gönguskóm? Eða leðurklædd Salandertýpa? Eða handlagin hannyrðakona? …Bara að hún sé frjáls í anda en ekki niðurnjörvuð og skilyrt.
Vigdís mætti töluverðu mótlæti. En hún mætti því öllu af æðruleysi. Veikindum, ástarsorg, miklu vinnuálagi einstæðrar móður og þvermóðskulegu karlasamfélagi. Meira segja rauðsokkurnar voru stundum svolítið fýldar út í hana því hún var ekki yfirlýst rauðsokka. Allan vind hefur hún tekið í fangið og því er kannski ekki undarlegt að virðing okkar fyrir henni sé jafn djúpstæð og raun ber vitni.
Vigdís er best þekkt fyrir:
Að vera fyrsti kvenkyns þjóðhöfðingi heimsins!
Að hafa verið valin kona 20. aldar á Íslandi og þarf ekki fleiri orð að hafa um það! Við þekkjum allar þá sögu.
Að taka einarða afstöðu í því hvernig skuli fara með íslenska náttúru.
Að sitja heima á kvennafrídaginn til að sýna konum samstöðu þegar lög voru sett á verkfall flugfreyja hér á landi í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar. Hún skrifaði þó undir lögin því hún taldi það utan færi forseta að synja lögum.
Þetta vita ekki allir:
Lokaúrslit forsetakosninganna árið 1980 voru sem hér segir og Guðlaugur Þorvaldsson var merkilega nálægt því að hreppa embættið.
Að kjóllinn sem Vigdís klæddist á svölum heimilis síns að morgni þess 30.júní var gjöf frá konu sem studdi hana í kosningabaráttunni. Vigdís gaf ekki uppi hvaða kona gaf henni kjólinn en hafði heitið því að fara í hann um leið og sigur varð vís. Hann er handprjónaður og mikið augnayndi eins og sjá má á myndinni hér til hliðar.
Þetta fer í taugarnar á henni:
Ensk setningaskipan! Sérstaklega þegar sögninni að vera er bætt í setningar að óþörfu. Sem dæmi má nefna setningu eins og þessa: „Ég er ekki að skilja þetta“
Þetta hefur hún sagt:
Um forsetaframboðið: „Ef ég get lagt eitthvað til málanna til þess að konur sæki fram tel ég það til góðs fyrir dætur þjóðarinnar.
Um mikilvægi þess að Ísland sé í fararbroddi kvenfrelsis í heiminum: „Ég veit að konur eru gullnámur, en þjóðfélagið hefur ekki komið auga á það.“
Um að vera ógift: „…Ég hef hingað til komist af í opinberu lífi, veislum og öðrum samkomum, án herra mér við hlið.“
Um hrunið: „Mér finnst eins og svo margt sem ég hef unnið að sé orðið að engu… En síst af öllu megum við gefast upp heldur stöðugt skilgreina vandann og takast á við hann. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Íslendingar standa frammi fyrir erfiðleikum. Við erum komin af fólki sem lifði af gífurleg harðindi og komst af í harðbýlu landi við mikla fátækt.“
Um tungumál og menningu: “Þrenning ein og órofa er land, tunga og þjóð.”
Eftir forsetavaktina:
Frá því hún yfirgaf embættið hefur hún haft nóg að gera. Hún er velgjörðarsendiherra Unesco á sviði tungumála og tekur þátt í starfi heimsráðs kvenleiðtoga sem hún átti reyndar þátt í að stofna.
Þá var hún formaður Unesco um siðferði í vísindum og tækni og 17 sinnum hefur hún hlotið heiðursdoktorsnafnbót við háskóla víða um heim. Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum starfar innan Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands og er rannsóknavettvangur þeirra kennara hugvísindadeildar sem fást við erlend tungumál, fornfræði og þýðingafræði. hugvísindanna.
Nokkrar myndir af Frú Vigdísi:
- Svart og hvítt!
- Vigdís í ljósum kjól
- Í búningi fjallkonu
- Kona í prjónakjól með völd eftir embættistökuna á svölum heimilis síns.
- Vigdís hoppar í París
- Í heiðbláum kjól með púffermum
- Í fararbroddi meðal þjóðhöfðingja










Jóhanna Svala
1 Ár síðan
Hún er gjörsamlega flottust þessi kona. Ég ætla að verða eins og hún þegar ég verð stór
Hildur
1 Ár síðan
Eitt af því besta sem þjóðin hefur átt.