1. Pakkaleikur:
Þessi er löngu orðinn klassískur en það er alltaf gott að rifja upp.
Gjöf er pakkað inn í mörg lög af dagblöðum og límbandi. Afmælisgestir setjast í hring. Einn (ekki afmælisgestur) er fenginn til að stjórna tónlistinni. Hann snýr baki í hringinn og kveikir og slekkur á tónlistinni til skiptis. Pakkinn er látinn ganga á milli gesta en þegar tónlistin stöðvast má sá sem heldur á pakkanum reyna að rífa pappírinn utan af gjöfinni. Þegar tónlistin hefst á ný skal pakkinn látinn ganga áfram alveg þangað til einn stendur eftir með innihald pakkans í höndunum.
2. 10 hlutir á bakka:
Það eru að minnsta kosti tvær leiðir til að leika þennan leik.
Önnur er að raða 10 eða fleiri hlutum á bakka eða borð og biðja keppendur um að reyna að leggja þá á minnið á 30 – 60 sek. Keppendur snúa sér svo við og loka augunum á meðan leikstjórnandi tekur einn (eða fleiri ) hlut. Sá sem er fyrstur að rétta upp hönd og segja rétt svar, sigrar.
Hin leiðin er ef til vill fyrir aðeins eldri börn eða annað fólk. Hlutunum er raðað á bakka eða borð, keppendur reyna að leggja þá á minnið á 30 – 60 sek. Að þeim tíma loknum breiðir leikstjórnandi yfir hlutina. Keppendur fá þá blað og blýant og reyna að skrifa sem flesta hluti niður eftir minni. Sá sem skrifar alla eða flesta rétt, sigrar.
3. Skott á kisu:
Afmælisbarnið teiknar mynd af dýri eða fígúru sem því dettur í hug á stórt blað eða nokkur minni límd saman. Einnig er klippt út skott á dýrið. Blaðið er hengt upp á vegg.
Ef veislan fer fram í góðu veðri er hægt að notast við krít og vegg. Þá þarf ekkert skott því gestirnir geta notað krítina til að strika á réttan stað.
Allir stilla sér upp í röð fyrir framan myndina og skiptast á að reyna að setja skottið á réttan stað með bundið fyrir augun. Sá sem er næst því að hitta á réttan stað, sigrar.
4. Pakkaflöskustútur:
Þessi er sniðugur þegar kemur að því að opna pakkana. Gjöfunum er safnað saman og gestir setjast í hring með flösku í miðjunni. Flöskunni er snúið og sá sem flöskustúturinn lendir á nær í pakkann frá sér og afhendir afmælisbarninu.
Einnig er hægt að spila klassísku útgáfuna þar sem gestir sitja í hring, snúa flöskunni og skiptast á að leysa þrautir…sá sem flöskustúturinn lendir á…
5. Fjársjóðsleit:
Þessi krefst örlítils undirbúnings að hálfu foreldra eða eldri einstaklinga. Þeir útbúa vísbendingar eða þrautir sem hver og ein færir keppendur nær fjársjóði. Best er að hafa eitthvað fyrir alla í fjársjóðskistunni.6. Penni í flösku:
Þáttakendur fá penna og bandspotta í hendur. Bandið er hnýtt við pennann og svo utan um mitti keppanda. Glerflösku ( því hún er stöðugri) er komið fyrir fyrir neðan hvern og einn og allir reyna að koma pennanum ofan í flöskustútinn. Sá sem er fyrstur að hitta pennanum ofan í stútinn sigrar.
7. Húllakeppni:
Tveir og tveir húlla í einu á meðan leikstjórnandi tekur tímann. Sá sem húllar lengst stendur að sjálfsögðu uppi sem sigurvegari.
8. Stoppdans:
Leikstjórnandi kveikir á tónlist og þátttakendur dansa frjálst. Þegar stjórnandinn stoppar tónlistina frjósa allir örsnöggt. Sá sem er síðastur að frjósa eða hreyfir sig eftir að tónlistin stoppar, dettur út úr leiknum. Þetta er endurtekið þar til einn er eftir.9. Eggjaboðhlaup:
Harðsjóðið tvö egg og skiptið gestunum í tvö lið. Allir fá matskeið. Sá fremsti í hvorri röð setur skaftið á skeiðinni upp í sig og kemur egginu fyrir ofan í. Þegar leikstjórnandi gefur merki hefst boðhlaupið. Keppendur verða að komast fram og til baka án þess að missa eggið. Það lið sem er fyrst til að klára heila umferð, sigrar.
10. Hæfileikakeppni:
Kannt þú að standa á haus, fara í splitt, teikna flott eða galdra. Sannaðu það og gestirnir kjósa svo besta atriðið með leynilegum kosningum.
Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir



kolla
1 Ár síðan
Nr.11 Limbó…eilífðarklassík *
Harpa Rut Hilmarsdóttir
1 Ár síðan
Takk, frábært að vita af þessari samantekt við næsta tækifæri.
Nr. 6 plús. Nota OB túrtappa í stað penna og hafa vatn í plastflösku. Láta túrtappann fara ofan í vatnið, bólgna og hlaupa svo sprett með flöskuna hangandi á milli lappanna á túrtappanum. Mjög fyndið.
Ógó skemmtilegt.
kolla
1 Ár síðan
Já það er fint að hafa svona lista við höndina í næsta boði og einmitt um að gera að bæta við hugmyndum*