Konur sem gera:Sunna Dögg Ásgeirsdóttir

October 7th, 20109:49 am @ kolla

0


Konur sem gera:Sunna Dögg Ásgeirsdóttir

Sunna Dögg Ásgeirsdóttir hannar barnaföt fyrir 1- 8 ára undir merkinu Sunbird.
Sunna byrjaði að hanna föt strax í grunnskóla þó svo að hún hafi aðeins farið eina önn í handavinnu vegna þess að hún valdi alltaf smíði í staðinn. Handavinnan í skólanum fannst henni ekki nógu spennandi og frjáls.

Á unglingsárunum kom upp uppreisnarhugur  í Sunnu varðandi klæðnað og hún saumaði mikið á sig sjálf þar sem henni fannst allt eins í búðunum. Hún hafði þó alltaf haft mjög sterkar skoðanir á því  sem hún klæddist sem barn og gat að eigin sögn gert foreldra sína brjálaða. Sem krakki vildi Sunna helst af öllu vera í gammósíum og rúllukragabol og hafði miklar skoðanir á samsetningu lita. Óþægileg föt eins og gallabuxur komu ekki til greina og  pils og kjólar fundust henni of fullorðins og stelpulegir. “Ég man alltaf  eftir samræðunum sem áttu sér stað í byrjun desember og fyrir páska um að nú þyrfti ég að fara í kjól á jólunum og páskunum.”
Á menntaskólaárunum var Sunna dugleg að taka þátt í allskyns fatahönnunarkeppnum og bar iðulega sigur úr bítum þar. Þá áttaði hún sig á því að hún  hefði eitthvað til brunns að bera í þessu fagi. Hún streittist þó  á móti fyrst um sinn og leit meira á þetta sem áhugamál en alvöru. Fór til að mynda í vöruhönnun í Listaháskólanum í stað þess að fara í fatahönnun jafnvel þó að hún hafi komist inn í hvoru tveggja. “Ég leitaði í vöruhönnunia til að fá víðari sýn á hverja flík og geta fylgt henni eftir frá hugmynd að fullgerðri, innpakkaðri vöru, tilbúinni til sölu.”

Sunna Dögg stundaði ballet frá 6 til 19 ára aldurs en skipti þá yfir í karate og er nú með brúna beltið. Það kemur því ekki á óvart að Sunna sé meðvituð um hvernig það er að hreyfa sig í fötunum sem hún hannar og leggi mikið upp úr þægindum og því að börnin geti hreyft sig frjálst og óhindrað.

Hver er bakgrunnur þinn?
Ég útskrifaðist sem vöruhönnuður frá Listaháskóla Íslands vorið 2005. Ég hef samt alla tíð verið að grúska við föt, hvort sem það er stílisering eða hönnun. Hef tekið þátt í hinum ýmsu tískusýningum, fatalína í mínu nafni var framleidd og seld í Hagkaup eftir sigur í fatahönnunarkeppni Hagkaupa 2006 og nú síðast starfaði ég hjá Nikita.

Hefur einhverntíman komið til greina að verða eitthvað annað en fatahönnuður?
Já margt. Um tíma vildi ég rækta hesta og skildi ekki afhverju ég mátti ekki hafa hesta í bílskúrnum hjá mömmu og pabba. Svo ætlaði ég verða verkfræðingur, ballerína, karate- eða yogagúru. En á einhvern hátt hefur fatahönnunin alltaf togað fast í mig. Þannig að ég gafst upp á því að reyna að vera eitthvað annað en það sem hjartað sagði mér að vera og er bara alsæl með það.

Hvað varð til þess að þú ákvaðst að einbeita þér að barnalínu og kemur til greina að hanna föt fyrir fullorðna í framtíðinni?
Áður en ég fór af stað með Sunbird barnafötin hafði ég aðallega hannað á fullorðna. Svo eftir að ég eignaðist sjálf barn fór ég að finna fyrir því hvað mér fannst erfitt að finna föt sem bæði ég dóttir mín vorum ánægðar með. Umfram allt  töff en þægileg barnaföt. Það að hanna barnaföt hefur lengi dvalið í mér. Ég á þrjá yngri bræður þar á meðal einn sem er ný orðinn átta ára. Mamma hefur líka mikið talað um það  hvað  sé erfitt að finna flott og þægileg föt á stráka sérstaklega. Þannig að það hefur verið einn útgangspunktur hjá mér  að skilja ekki strákafötin útundan. Það er til dæmis mjög algengt að labba inn í barnafataverslun og þar er einn lítill veggur fyrir strákaföt og svo þrír fyrir stelpuföt.
Eins og er stefni ég ekki á að hanna fullorðins föt í framtíðinni, ekki nema það sé þá tengt Sunbird, ein flík fyrir mömmur og pabba í hverri línu. Hinsvegar stefni ég á það að breikka línuna og hanna á krakka frá 0-14 ára á komandi árum.

Hvað hafa komið út margar línur eftir þig og hvar eru fötin saumuð og framleidd?
Hagkaup seldi línu í mínu nafni 2006, náttföt, nærföt og hversdagsföt. Ég seldi svo undir nafninu U Bunný… used to the future í versluninni Trílógíu um tíma eða þar til ég fór að vinna hjá Nikita sem hönnuður og grafíker. Eftir það stofnaði ég Sunbird. Línan sem er að koma í verslanir núna er framleidd hér heima, hjá Henson. Sumarlínan næsta verður hinsvegar framleidd í Kína og Portúgal.

Hverjar eru þínar fyrirmyndir í leik og starfi?
Fyrirmyndir mínar í leik eru án efa Lóa Margrét dóttir mín, Skúli Thor bróðir minn og afi prik heitinn. Snillingar sem koma manni sífellt á óvart og fá mann til að brosa og hlæja við það eitt að líta á þau. í starfi og daglegu lífi eru það allar frábæru konurnar í fjölskyldu minni, allt hörkukvendi og ofurkonur, mamma, ömmur mínar og móðursystir. Alltaf jákvæðar, drífandi, fullar af orku og líta aldrei á neitt sem vandamál heldur verkefni sem gaman er að leysa.

Hvað gerir þig hamingjusama?
Svo ótal margt. Fjölskyldan, vinir, fuglar á flugi, íslenska birtan og að vera minn eigin herra.

Besta ráð sem þú hefur fengið?
Hmmm. Ég hef þegið svo mörg góð ráð frá svo mikið af góðu fólki. En það sem kemur fyrst upp í huga minn núna er ráð frá Kolbrúnu grasalækni sem hún gaf mér eftir lithimnulestur: Að horfa ekki og hlusta ekki á fréttir og ljótar bíómyndir. Ég er of opin og viðkvæm fyrir svoleiðis. Tek öll vandamál heimsins inn á mig og ber þau á herðum mér, þá er betra að vita bara ekki af þeim. Eða að minnsta kosti þykjast ekki vita af þeim.

Hvaðan færðu innblástur?
Innblástur fyrir vetrarlínuna 2010-11 sæki ég í setninguna, “Töffari hittir Indjána prinsessu”. Jafnframt sæki ég innblástur í Lóu Margréti dóttur mína og börnin í kringum mig, hvernig þau hreyfa sig ómeðvituð um stund og stað og eru alltaf tilbúin að prófa eitthvað nýtt. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á því hvernig mannslíkaminn hreyfir sig. Mér hefur þótt erfitt að finna barnaföt sem bæði foreldrum og börnum finnst flott og sem börnum líður vel í. Ég pæli mikið í því að hreyfigeta barnanna sé hvergi heft í Sunbird fötunum og er því hver flík vandlega útfærð með hreyfifrelsi barnanna að leiðarsljósi.

Hvernig er dæmigerður dagur hjá þér?
Dæmigerður dagur hefst á því að ég er vakin af dóttur minni með látum. “Mamma það er kónguló á koddanum þínum” er klassískt og þá rýk ég á fætur. Keyri á leikskóla og í vinnu en það sem tekur svo við er aldrei eins frá degi til dags. Góður kaffi bolli er nauðsynlegur og að svara e-mailum. Vinnan er mjög margvísleg allt eftir hvar hver lína er stödd í ferlinu en eins og stendur er ég að vinna með 3 línur, vetur 2010, sumar 2011 og vetur 2011. Þannig að dagurinn getur verið allt frá því að teikna upp í tölvu, lita og mæla flíkur í að vera stödd í myndatöku frá morgni til kvölds. Gott er að ná að fara í yoga eða pilates áður en smölun fjölskyldunnar hefst. Svo finnst mér nauðsynlegt að ná gæðastundum með Lóunni minni og fjölskyldu áður en hún fer í bólið. Þá tekur við smá meiri vinna eða dott yfir sjónvarpsþætti.

Er mikil samkeppni í þessum geira?
Já samkeppnin er gríðarleg en jafnframt jákvæð og hvetjandi.

Hvert stefnir þú?
Á alheimsyfirráð. Að Sunbird fötin geti glatt jafnt, börn, foreldra og áhorfendur um víða veröld.

Hvað er á döfinni?

Sunbird vörurnar koma í verlsanir hérlendis í vikunni, Bíbí og blaka, Fiðrildið, Mýrina og Rumputuski.  Myndataka fyrir veturinn 2011-12 og undirbúningur fyrir sölusýningar.

Heimasíða Sunbird og Sunbird á facebook

Kynningarmyndband

Sunbird movie from Sunbird on Vimeo.

Sunbird movie from Sunbird on Vimeo.

Texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir

Mynd af Sunnu og Lóu Margréti: Anna Palma

Myndir fyrir fatalínu: Sunna Dögg Ásgeirsdóttir og Haukur Hrafn Þorsteinsson.

Myndband: Sunna Dögg Ásgeirsdóttir og Haukur Hrafn Þorsteinsson en tónlistin er í höndum bræðra hennar Sunnu, Pálma Ragnars og Ásgeirs Orra í StopWaitGo.