Tinna Bessa sendir yfir hafið: hrekkjavökusúpa

October 28th, 20108:40 am @ kristjana

0


Tinna Bessa sendir yfir hafið: hrekkjavökusúpa

Nú er komin hrekkjavaka og þá fæst árstíðabundið grænmeti á borð við grasker í verslunum. Við Íslendingar þekkjum graskerin ekki mikið, erum hrædd við að matreiða þau og notum þau aðallega í skreytingar.

Hér er mjög góð og einföld uppskrift af graskerssúpu. Hún er frekar sæt á bragðið og gengur vel ofan í börn. Eldum fullan pott af graskerssúpu og bjóðum öllum krökkunum í hverfinu í hrekkjavöku mat, kveikjum á kertum, skerum út risagrasker og klæðumst eins og uppvakningar, nornir, vampírur og aðrir óvættir.

Uppskrift:

1 stórt Hokkiado grasker ( ca 1300 gr.) ef þau eru mjög lítil þá þarf fleiri

2 risa gulrætur, eða nokkrar minni

1 l vatn

Kjúklingakraftur

1 laukur

Engifer, eftir smekk

2-3 hvítlauksrif

100 gr smjör

100 ml mabel síróp

Salt

Aðferð:

Skerið Hokkiado graskerið í sundur og hreinsið kjarnarna innan úr.

Skerið graskerið niður með berkinum í lófastóra bita og setjið í pott ásamt vatni kjúklingakrafti, gulrótum og laukum.

Sjóðið í ca 20 mín. Setjið í matvinnsluvél svo að allt maukist saman og myndi mjúkaáferð.

Hellið aftur í pottinn og bætið út í smjöri, sírópi og salti og látið sjóða. Smakkið og bætið útí eftir smekk.

Til umhugsunar:

Hokkiado grasker eru minni en þessi stóru sem við erum vön, en í raun og veru er auðveldara að nálgast þau og vinna með. Það má nota aðrar tegundir af graskerum, squash eða lafnvel sætar kartöflur í staðin.

Ef verið er að elda fyrir börn þá má auka magnið af sírópi og smjöri. Fyrir fullorðna þá er upplagt að krydda hana vel með engiferi, sharlott lauk, hvítlauk og jafnvel setja smá kanil útí.

Þessi súpa er eins og kjötsúpurnar, hún er best daginn eftir og ef að mikill afgangur er þá má vel bæta útí hana smá hveiti, eggjum , lyftidufti og vanilludropum og gera amerískar pönnukökur.

Tinna Bessadóttir