Freyðandi sunnudagssúkkulaði

October 3rd, 201010:38 am @ kolla

1


Freyðandi sunnudagssúkkulaði

Þetta heita og freiðandi súkkulaði er svo ljúffengt að manni er skapi næst að synda í því.

Stútfullt af andoxunarefnum og lækningarmætti leyfum við okkur að fullyrða.

Dýfum okkur til sunds!

Þú þarft:

6 dl mjólk

2 1/2 msk. vatn

2 1/2 msk. hrásykur

100 gr. suðusúkkulaði

Aðferð:

Setjið mjólkina, vatnið og sykurinn saman í pott og hitið á miðlungshita uns sykurinn hefur bráðnað.

Hækkið þá hitann og hrærið þar til mjólkin sýður.

Takið pottinn af hitanum og blandið súkkulaðinu út í.

Hellið blöndunni í blandara, þeytið og berið strax fram.

Verði ykkur að góðu*

Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir