Fortíðarþrá í bland við framtíðardrauma

October 22nd, 201011:47 am @ kolla

4


Fortíðarþrá í bland við framtíðardrauma

Í krúttlegri íbúð í Hlíðunum búa 3 systkini ásamt mömmu sinni Jóhönnu Svölu og pabba Ísaki Winter. Þetta eru þau Rafn 8 ára, Róbert 5 ára og Sónata 2 ára en auk þeirra er nýjasti meðlimurinn á heimilinu kettlingurinn Blossi.

Það er auðvelt að gleyma stund og stað í herbergjum systkinanna og stundum hefur maður það á tilfinningunni að maður hafi farið nokkra áratugi aftur í tímann. Safnarar og unnendur klassískra leikfanga á borð við Fisher Price yrðu eflaust grænir af öfund yfir öllu fíneríinu sem fyrir augu ber . Jóhanna mamma barnanna er ávallt með augun opin fyrir fallegum hlutum og er dugleg að fara í Góða Hirðinn þar sem hún finnur stundum skemmtileg leikföng fyrir krakkana. Hún  fellur að eigin sögn fyrir öllu sem minnir á eigin barnæsku og blandar óspart saman gömlum og nýjum leikföngum. Spiladósasafnið er til að mynda mest frá eigin æsku fyrir utan nokkrar sem hún hefur keypt notaðar og þá helst frá Sanrio eða Fisher Price.

Ynjur fylltust  fortíðarþrá  í herbergi systkinanna en fengu jafnframt að  forvitnast um mismunandi uppáhald framtíðarinnar í leiðinni.

Uppáhald Rabba 8 ára:


Leikfang: Hauskúpukastalinn og Lego

Bók: Svona er tæknin

Litur: Svartur

Lag: Thriller

Matur: Pizza

Skemmtilegast að gera: Fara á fótboltaæfingu

Ætlar að verða: Fornleifafræðingur

Uppáhald Róberts 5 ára:



Leikfang: Indiana Jones dótið

Bók: Herramennirnir

Litur: Rauður

Lag: Upp með hendur, niður með brækur

Matur: Slátur og lifrarpylsa

Skemmtilegast að gera: í Taekwondo

Ætlar að verða: Fótboltamaður

Uppáhald Sónötu 2 ára (að verða 3 ára):



Leikfang: Bangsinn

Bók: Latabæjarbókin og Barbabapa

Litur: Bleikur / Fjólublár

Lag: Barbabapalagið og Lagið um litina

Matur: Kjötbollur

Skemmtilegast að gera: Syngja, hoppa og skoppa

Ætlar að verða: Forseti

Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir