Fataskápurinn: Berglind Óskarsdóttir

October 16th, 20101:50 pm @ kolla

1


Fataskápurinn: Berglind Óskarsdóttir

Nafn: Berglind Óskarsdóttir

Aldur: 27 ára

Búseta: Laugavegur, 101 Reykjavík

Atvinna/nám: Flugfreyja hjá Iceland Express

Fjölskylduhagir: Er í sambúð með Þórhalli Sævarssyni leikstjóra. Saman eigum við Óðinn Styrkár 2ja ára og eigum von á öðrum dreng í byrjun janúar 2011

Segðu okkur frá eigin hönnun:

Ég hef verið að sauma síðan ég var unglingur, aðallega fyrir sjálfa mig. Mamma mín kenndi mér að sauma. Þegar ég var yngri var ekki hægt að kaupa föt fyrir hvert skólaball og fórum við mamma því oft í efnabúð og keyptum efni í nýjan kjól sem við saumuðum saman.

Ég vinn líka með gömul föt, breyti þeim og gef þeim nýtt notagildi.

Ég hef undanfarið verið að þróa mig áfram og stefni á að hanna meira. Hef nú þegar fengið fjölmargar eftirspurnir.

Hvaðan færðu innblástur?

Úr mörgum áttum, úr tískuheiminum, ljósmyndum, og síðan veitir kærastinn minn mér innblástur.

Hvert er framhaldið?

Mig dreymir um nám í gullsmíði og skartgripahönnun. Það er erfiður bransi að komast að í hér heima. Fatahönnun og ljósmyndun heilla mig mjög mikið líka. Ég vildi helst sameina alla þessa þætti og geta unnið þannig. Ég er með mjög margar hugmyndir í kollinum og hlakka til að koma þeim öllum í framkvæmd.

Hvernig myndirðu lýsa fatasmekk þínum?

Kvenlegur, klassískur með Bohemian “touch”.

Áttu þér uppáhaldsilmvatn?

Amber Romance frá Victorias´s secret

Hverjar eru uppáhaldsflíkur þínar í fataskápnum?

Kærastinn er mikill fagurkeri og hefur gaman af því að gefa mér fallegar gjafir. Hann gaf mér t.d dásamlega Marc Jacobs tösku í afmælisgjöf í fyrra, í jólagjöf fékk ég frá honum frábæra kápu frá Jet Korine. Ég er mjög glöð að geta notað hana aftur eftir sumarið.

Dolce & Gabbana kjóll sem ég keypti síðasta sumar og notaði í Suður Frakklandi er einnig í miklu uppáhaldi.

Ég hef eins og flestar konur gaman af því að kaupa mér skó og á nokkur mjög falleg skópör. Síðast keypti ég Marc by Marc Jacobs skó í New York.

En verstu kaupin?

Ég hef alltaf verið ánægð hverju sinni með það sem ég kaupi mér en stíllinn er alltaf að breytast og ég hlæ stundum þegar ég sé gamlar myndir af mér. Tískuslysin hafa verið þó nokkur.

Hvað finnst þér nauðsyn að versla inn fyrir veturinn í ár?

Ég elska þegar haustið kemur. Loðfeldir, stórar peysur, fallegar kápur og góðir skór. Haust tískan er falleg í ár – hægt er að segja að nú sé endurkoma klassískrar klæðnaðar. Einnig finnst mér nauðsynlegt að eiga fallega fylgihluti og töskur með t.d myndi ég vilja fallegan skartgrip frá Shamballa Jewels

Ef buddan leyfði myndi ég kaupa draumaflíkina mína í ár – aviator jakka frá Burberry Prosum.

Hverjar eru uppáhalds verslanir þínar, hérlendis sem erlendis?

Á Íslandi er miðbærinn í uppáhaldi, Kronkron, Kisan, Anderson & lauth og Einvera. Þegar ég fer í kringluna eru það Zara og Topshop

Vegna vinnu okkar beggja erum við lánsöm að geta ferðast mikið og finnst mér æðislegt að versla í Kaupmannahöfn, Cannes og New York en þar eru uppáhalds búðirnar mínar : T.d Acne, Opening Ceremony og fl.

Er fataskápurinn vel skipulagður?

Nei þar ríkir mikil óreiða, skipulögð óreiða.

Texti: Kristjana Guðbrandsdóttir

Myndir: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir

Myndir af hönnun Berglindar: Berglind Óskarsdóttir