1. Góður varasalvi
Bleikrauði varasalvinn frá Vaseline þykir okkur pottþéttur. Hann heldur vörunum mjúkum og svo er liturinn rósbleikur og fallegur.
2. Heitt kakó
Dökkt súkkulaði í bolla frá Green og Blacks bræðir önugustu sál. Prófið að setja örlítið af hunangi út í og ekki gleyma þeyttum rjóma.
3. Háir sokkar
Þú þarft ekki að fjárfesta í rándýrum háum sokkum. Þú getur keypt þér herrasokka í lítilli stærð í herraverslun. Ómissandi lúxus í sófanum heima.
4. Góð bók
Farðu í heimsókn til Braga bóksala á Hverfisgötunni. Þar geturðu fundið skemmtilegar bækur á spottprís.
5. Keyptu þér tónlist
Við erum fastar í fortíðinni með Velvet Underground.
6. Góð yfirhöfn
Það væri gaman að finna flík eins og þessa sem Catherine Deneuve klæddist í hlutverki Severin í kvikmyndinni Belle de Jour.
7. Góðir skór að ganga á
Það þýðir lítið að tipla á pinnahælunum á hálu svelli. Fáðu þér almennilega skó eða láttu sóla pæjuskóna hjá skósmiði. Þessir fást í Marc O’Polo í Kringlunni.
8. Indverskur matur
Keyptu þér góð krydd, linsubaunir, grænt chili, kryddmauk og góð grjón. Það er lítið mál að elda ódýran indverskan mat og hann heldur þér heitri. Fáðu þér hvítvínsglas með til að koma blóðinu á hreyfingu.
9. Föndur
Hjá konum með barnshjarta byrja jólin í september. Það er því ekki seinna vænna að byrja að reyna að líma saman á sér alla putta og klambra saman einhverju fyrir jólin. Búðu til snjókristalla úr sykurpúðum og bjóddu fólki út í heitt kakó.
10. Prjón
Prjónaðu eitthvað skemmtilegt og frumlegt. Taktu þér prjónagraffíti til fyrirmyndar-vantar ekki blómapottnum húfu eða tebollanum skjól? Þessi tehlíf er frá KnitStorm.



Þórunn
1 Ár síðan
Hvar fæst varasalvinn á Íslandi