1. Farðu í gönguferð.
Teiknaðu eða skrifaðu lista yfir hluti sem þú finnur á gangstéttinni.
2. Skrifaðu bréf til þín í framtíðinni.
Trúðu þér jafnvel fyrir leyndarmáli eða einhverju sem þér finnst mjög mikilvægt þessa stundina.
3. Keyptu blöðrur og skreyttu umhverfið þitt með þeim án sérstaks tilefnis.
Blöðrur gleðja undantekningarlaust.
4. Settu uppáhalds nammið þitt neðst í töskuna þína, hanskahólfið eða upp í skáp.
Gleymdu því og vertu svo ótrúlega hissa og glöð þegar þú finnur það síðar.
5. Finndu mynd af einhverjum ókunnugum og skrifaðu stutt æviágrip þeirrar manneskju.
Taktu fram skóstærð, uppáhaldslit og fleiri nauðsynlegar upplýsingar.
6. Teiknaðu allt sem er í töskunni þinni.
Það gæti jafnvel fengið þig til að henda kvittunum.
7. Settu myndir, póstkort eða teikningar sem gleðja þig á innanverða hurð eldhússkápsins.
Skiptu um myndir þegar þú ert hætt að taka eftir þeim.
8. Gerðu lista yfir hluti sem þú myndir vilja gera á hverjum degi.
Reyndu að framkvæma að minnsta kosti einn á dag.
9. Skrifaðu bréf til manneskju sem þú dáist að.
Sendu það frímerkt í pósti og láttu jafnvel fylgja lítinn glaðning með (límmiða, ljósmynd, tyggjó, þurrkað blóm.)
10. Skrifaðu niður alla lykt sem þú finnur á einum degi.
Reyndu að vera nákvæm í lýsingum.



September 13th, 2010 → 5:08 pm @ kolla
0