Tinna Bessa sendir heilræði yfir hafið: Mildur indverskur kjúklingaréttur

September 4th, 201012:01 pm @ kristjana

0


Tinna Bessa sendir heilræði yfir hafið: Mildur indverskur kjúklingaréttur

Mildur indverskur kjúklingaréttur (góður fyrir börnin líka) stór uppskrift

Þessi indverski kjúklingur er bæði bragðríkur og í senn mildur. Hann er kjörin fyrir stórar fjölskyldur þar sem foreldrunum langar til að breyta ögn útaf vananum án þess að þurfa að hafa áhyggjur af börnunum eða þeim sem ekki vilja sterkan mat.

2,5 kg kjúklingabringur / kjúklingalundir

4-5 gulrætur

2 laukar

4 hvítlauksrif – 2 litlir hvítlaukar

1/3 ferskt engifer

2 stórir tómatar

1 bakki ferskur dvergmaís (babycorn)

130 gr þurrkaðar aprikósur

30 gr rúsínur

3 msk sesamolía

1 msk rauðvínsedik

2 dl kókosmjólk ( 2 litlar dósir)

4 tsk tómatpaste

Kryddblanda:

4 tsk tandori

1 tsk salt

2 tsk chiliduft

½ tsk kardimommuduft

1 tsk negulduft

3 tsk kanill

2 tsk estragon

• Blandið kryddinu saman við sesamolíuna og edikið, skerið bringurnar í strimla, gulræturnar og dvergmaísinn í bita og setjið útí kryddblönduna og látið marinerast.

• Sjóðið hrísgrjón

• Sjóðið apríkósurnar í litlu vatni í stuttan tíma rétt til að mýkja þær – uþb 5 mín.

• Skerið laukinn í þunnar sneiðar, saxið hvítlaukinn, rífið engiferið og steikið á pönnu við lágan hita.

• Bætið kjúklingnum, gulrótunum og dvergmaísnum út á pönnuna, hellið örlitlu vatni og rauðvínsediki út á. Látið malla.

• Skerið tómatana í teninga og aprikósurnar í sneiðar og látið útí ásamt rúsínunum.

• Bætið kókosmjólkinni og tómatmaukinu út í og látið malla þar til kjúklingurinn er orðin meyr. Smakkið og bragðbætið með kryddi ( tandoori, kanil, salti osfv.. )

Berið fram með hrísgrjónum.

Fyrir þá sem ekki þola sterkan mat þá er mælt með að hafa sýrðan rjóma sem meðlæti. Mér hefur þótt best að setja rjómaost út hjá mínum börnum svo að maturinn sé vel mildur og gangi vel niður hjá viðkvæmum munnum.

Það má einnig bæta glögg af rjóma út í réttinn.