Samsærisklútar

September 30th, 20109:15 pm @ kolla

7


Samsærisklútar

Það er grátlegt hvað sokkabuxur eiga stuttan líftíma og ekki laust við að manni detti stundum í hug  samantekin ráð sokkabuxnaframleiðenda.

Hér snúum við á allar samsæriskenningar og gefum gömlu sokkabuxunum  eilíft líf á þrjá vegu.

Þú þarft:

Gamlar sokkabuxur (hér er notast við barnasokkabuxur en auðvitað er tilvalið að nota “lykkjufallnar ” nælonsokkabuxur)

Skæri


Aðferð 1
:

Fléttuklútur

Skálmarnar á sokkabuxunum eru klipptar af og svo klipptar í tvennt.

Lengjurnar eru hnýttar saman .

Veljið þrjár lengjur í litum og mynstri að eigin vali og festið þær saman með afgangsbút af sokkabuxum.

Fléttið lengjurnar saman.

Aðferð 2:

Keðjuklútur

Skálmarnar eru klipptar af og klipptar í  lengjur. Fjöldinn fer eftir því hvort þið viljið hafa klútinn fíngerðann eða grófann.

Hér er sá grófari gerður úr 2 skálmum hnýttum saman og sá fínni úr skálm sem klippt var í 4 ræmur og hnýttur saman.

Lengjurnar eru hnýttar saman í  áætlaða lengd.

Tvær lengjur eru bundnar við t.d hurðarhún og svo snúið upp á þær saman alveg út að enda.

Þegar snúningurinn er orðinn vel strekktur er lengjan brotin saman í miðju og sleppt.

Þá rúllast hún upp í keðju að sjálfu sér.

Aðferð 3:

Hnútaklútur

Sokkabuxurnar eru klipptar í lengjur og hnýttar saman í áætlaða lengd.

Hægt er að hnýta saman fleiri en einn og fleiri en tvo liti.

Bindið hnút á lengjuna með reglulegu millibili.

Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir