Hver er bakgrunnur þinn?
Ég hef síðustu tíu ár starfað við ýmis verkefni innan fjölmiðla og menningarlífsins á Íslandi. Ég lærði skapandi verkefnastjórnun í KaosPilot háskólanum í Árósum. Óvenjulegt þriggja ára nám um stjórnun þar sem mikil áhersla var lögð á að virkja skapandi hæfileika sína. Áður hafði ég lært almannatengsl og markaðsfræði í London í eitt ár. Eftir útskrift starfaði ég m.a. hjá Höfuðborgarstofu við að skipuleggja Menningarnótt, Vetrarhátíð og fleiri viðburði.
Jóga hefur fylgt mér síðustu tíu árin alltaf sem áhugamál en síðasta vor ákvað ég að skipta um áherslur og gera áhugamálið að aðalvinnunni minni. Ég fékk jógakennararéttindi 2009 hjá Guðjóni Bergmann og byrjaði að kenna opna tíma í World Class sl. vetur. Ég hef síðan kennt jóga og líkamsbeitingu í leiklistardeild Kvikmyndaskóla Íslands undanfarin misseri – og kenni nú meðgöngujóga og krakkajógatíma með aðsetjur í Baðhúsinu. Ég er að sérhæfa mig í að kenna meðgöngujóga og kenni þessa tíma meðfram námi mínu hjá breskum jógakennara, Jane Mackarness.
Hvaðan færðu innblástur?
Ég fæ innblástur frá bókum, bæði skáldsögum og fræðibókum. Ég á talsvert af bókum sjálf og safna þeim eins og gulli, og glugga oft í þær og les sumar aftur og aftur.
Ég fæ innblástur frá dætrum mínum tveimur sem eru þriggja ára og eins árs, og þeirri einlægu gleði sem skín úr augum þeirra og hlátrinum þeirra. Eldri dóttir mín er mikill stuðbolti og afar hugmyndarík og sú yngri kemur mér stöðugt á óvart með tilraunum sínum. Börn eru bestu kennararnir okkar. Hugsa sér hvað við gleymum miklu um það sem skiptir máli í lífinu þegar við fullorðnumst.Ég fæ innblástur frá fólkinu í kringum mig – í kringum mig er mikið af fólki sem lifir lífinu lifandi, bæði fjölskylda mín og vinir, og hafa áhrif á mig.
Hvers vegna ákvaðstu að leggja stund á jóga?
Þegar ég var yngri dansaði ég klassískan ballett og þegar ég var um tvítugt langaði mér að finna mér einhvert form hreyfingar sem að mundi henta mér og þessum grunni sem ég hafði. Fljótlega eftir að ég prófaði jóga fyrst fann ég að þetta væri eitthvað fyrir mig, fór að sækja kraftjógatíma og fann að ég hafði aldrei áður verið í eins góðu formi – ekki bara líkamlega heldur líka andlega. Jóga er ekki bara líkamsrækt –að komast í gott líkamlegt form er í raun auka ávinningur af því að stunda jóga. Allar þessar æfingar hafa áhrif á ástand hugar og sálar – skapa aukið jafnvægi. Endar er markmiðið með reglulegri jógaástundun að skapa jafnvægi milli líkama, hugar og sálar. Síðar fór ég að kynna mér heimspekina á bak við jóga og hreyfst enn meira af þessum fornu fræðum fyrir vikið.
Hvernig er dæmigerður dagur hjá þér?
Ég vinn mjög óreglulega svo ég get af hreinskilni sagt að enginn dagur er eins hjá mér. Ég kem stúlkunum mínu í dagvistun á morgnana og sest svo við tölvuna á skrifstofunni minni. Þar er ég að læra eða að undirbúa kennslu. Ýmis konar önnur verkefni rata inn á borð til mín sem fela í sér skriftir eða einhverskonar verkefnastjórnun. En þessa dagana er ég fyrst og fremst að sinna jóga. Og svo auðvitað kenni ég mína vikulegu tíma.
Eftir kl fjögur og fram að háttatíma barnanna er ég fyrst og fremst MAMMA og ver tímanum með stúlkunum mínum. Og eftir að þær eru sofnaðar nota ég yfirleitt kvöldin til að lesa.
Finnst þér konum gefast of lítill tími til móðurhlutverksins? Ef svo er, hvernig má nýta tímann betur?
Ég held að konur reyni alltaf sitt allra besta þegar kemur að því að sinna móðurhlutverkinu. Samfélagsgerðin sem við búum við gefur okkur ekki mikið svigrúm til að bara vera, slaka á og njóta líðandi stundar. Það er svo mikill asi í kringum okkur að oft finnst okkur eins og verðum sífellt að vera á tánum, fylgjast með og vera með í öllu. Mér finnst t.d. að við gætum með góðri samvisku lengt fæðingarolofið og gefið foreldrum kost á að vera lengur heima með barninu sínu. Aðal vandamálið, að mínu mati í dag, er við gleymum að staldra við og spyrja okkur hvað er mikilvægt í lífi okkar og hvernig við viljum lifa lífinu. Allir eru alltaf að flýta sér og eru stressaðir.
Það besta sem við getum gert (án þess að fara út í róttækar samfélagslegar breytingar) er að einsetja okkur að njóta stundarinnar sem við eigum með barninu/börnunum okkar. Reyna að skilja öll þessi verkefni – og áhyggjur – sem við erum að fást við eftir við útidyrnar og bara leika okkur. Það þarf ekki alltaf að vera með rosaleg plön um að gera þetta og hitt – heldur fyrst og fremst vera saman og gefa barninu/börnunum okkar athyglina sem þau þrá að fá – og við viljum gefa en gleymum því stundum.
Ég reyni að gera þetta en það heppnast ekki alltaf – enda er ég bara mannleg – en æfingin skapar meistarann, ekki satt?!
Hvaða jákvæðu tilfinningar leggur þú áherslu á í eigin fari?
Þakklæti er það fyrsta sem kemur upp í hugann og er eitthvað sem ég hugsa mikið. Ég minni mig reglulega á að þakka fyrir það sem ég hef og þá blessun sem ég hef fengið í lífinu. Og að gleðjast yfir því – og jafnvel hlæja af gleði yfir öllu þakklætinu…
Texti: Kristjana Guðbrandsdóttir
Myndir: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir







Edda Ýr
1 Ár síðan
Flott stelpa! Veit núna hvert ég fer næst í meðgöngujóga