Górillur götunnar

September 10th, 20108:30 am @ kolla

0


Górillur götunnar

Guerilla art er listform sem flestir ættu að geta tileinkað sér og tilgangurinn getur verið margbreytilegur eins og í list yfirhöfuð.

Að koma skilaboðum á framfæri, veita innblástur, senda út góða strauma eða bara til gamans.

Það geta verið  teikningar sem þú kemur fyrir þar sem einhver finnur þær eða sér, bókasafnsbækur með leyndum skilaboðum eða glaðningur sem þú skilur eftir til ókunnugra.

Hugmyndir:

allskyns  (teikningar, klippimyndir, krot, málverk)

uppskriftir

myndir

lukkugripir

prjónagraff (t.d. litlar fígúrur, treflar eða prjónaðir hólkar utan um staura)

spádómar

tilvitnanir

þematengdar innsetningar


Dæmi um framsetningu:

Krítarteikningar

Heimatilbúnir límiðar

Dreifibréf/plaköt

Dagbækur (sem eru látnar ganga)

Teiknimyndasögur eftir sjálfan þig

Hlutir sem þú skilur eftir fyrir aðra að finna (peningar,gjafir, smádót)

Miðar (slagorð)

Veggjalist

Óvænt skilaboð inni í bókum (t.d á bókasafninu)
Bækur sem þú skilur eftir fyrir næsta mann.

Bréf (t.d. ástarbréf til ókunnugra)

Flösku eða blöðruskeyti, jafnvel bréfdúfur ef þið eruð þeim mun ævintýragjarnari.

Sumir “górillulistamenn” eru pólitískir og finnst nafnleysi gera þeim kleift  að láta sterkari skoðanir í ljós á meðan aðrir eru aðeins að reyna að lífga upp á daginn hjá sér og e.t.v. annara um leið.

Nú er það undir þér komið hvaða leið þú velur til að tjá þig því öll erum við górillur innst inni.

Listamenn:

Banksy – Einn þekktasti guerilla listamaðurinn í dag en  heldur  nafnleynd.

Blu – Gerir ótrúleg video af verkum sínum.

Color Me Katie – Katie er ljósmyndari og götulistamaður í New York sem finnur meðal annars upp á sniðugum hlutum  með skæri og pappír að vopni.

Knitta Please – Prjónagraffarar sem gera lífið litríkara.

Little People – Heill heimur af litlu fólki sem gæti  farið fram hjá þér ef þú gætir ekki að þér.