Eilífðarblóm

September 23rd, 20102:11 pm @ kolla

2


Eilífðarblóm

Það er ástæðulaust að örvænta þó að blómin sölni þegar haustið læðist yfir í allri sinni dýrð.

Þá er einmitt tilvalið að útbúa eilífðarblóm sem gleðja allan ársins hring og gera úr því notlega föndurstund.

Þú þarft:

græn rör (að sjálfsögðu geta stilkarnir verið í hvaða lit sem er)

litríka plastpoka, pappír eða efni að eigin vali

heftara

Aðferð:

  • Klippið pokana í hringi, kassa eða blómaform.
  • Leggið formin saman tvö og tvö, klípið saman og snúið upp á þau í miðju.
  • Þá ættu þau að mynda einskonar kramarhús.
  • Stingið kramarhúsinu ofan í rörið og heftið það fast.
  • Klippið stilkana til.
  • Skreytið umhverfi ykkar og gleðjist.

Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir