Bút fyrir bút

September 7th, 201010:45 am @ kolla

3


Bút fyrir bút

Þegar ég hugsaði um bútasaumsteppi í gegnum tíðina (sem gerðist ekki oft) sá ég fyrir mér eitthvað amerískt, kántrílegt og flókið í framkvæmd.

Eitthvað sem krefðist bæði sauma og stærðfræðikunnáttu.

Það var svo  fyrir nokkrum árum að ég renndi í gegnum danskt húsbúnaðarblað og  sá mynd af svo frjálslegu og fínu bútasaumsteppi.  Ég sá strax að bútasaumsfordómar mínir voru á misskilningi byggðir og fann mig knúna til að prófa mína eigin útgáfu.
Allskonar efni sem ég hef sankað mér héðan og þaðan í gegnum tíðina fengu loks hlutverk. Gamlir kjólar, gull gardína , meiri gardínur, rifflaðar buxur og dúkar. Allt bútað niður og raðað saman í einn litahrærigraut.

Ég lét mér reyndar duga að gera barnastærð af teppi að þessu sinni en hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér.

Bútasaumsteppi

Þú þarft:

Fyrir teppi sem er 182 x 260 cm.

1 stk. bómullarefni í stærð 184 x 262  fyrir bakhliðina á teppinu, inni í því máli er gert ráð fyrir 1 cm í saum.

35 efnisbútar í stærð  27 x 27 cm, 1 cm saumur innifalinn í þeirri stærð.

140 efnisbútar í stærð 14 x 14 , 1 cm saumur innifalin í þeirri stærð.

Klippið bútana úr að minnsta kosti 10 mismunandi tegundum af efni.

Skæri og þráð.


Barnateppi
:

Teppi í stærð : 106 x 136 cm

1 stk. bómullarefni í stærð 108 x 138 cm fyrir bakhliðina á teppinu.

10 efnisbútar í stærð 27 x 27 , 1 cm saumur innifalinn í stærð.

40 efnisbútar í stærð 14 x 14 , 1 cm saumur innfalinn í stærð

Ég saumaði kant (í fjórum lengjum) utan um barnateppið en hann er innifalinn í stærðinni .

Teppið á myndunum er gert úr 7 mismunandi efnistegundum en þær gætu auðveldlega verið fleiri.

Aðferð:

Ath. Tölurnar inni í sviga eiga við um barnastærðina.

1. Saumið litlu bútana saman tvo og tvo, réttu á móti réttu. Saumið  þau stykki svo saman tvö og tvö,réttu á móti réttu, þannig að bútarnir myndi ferning með fjórum bútum í hverjum. Útbúið 35 (10)  stk. af þeim.

2. Leggið nú alla 70 (20) bútana á gólfið. raðið þeim í 7  (4) raðir með 10 (5) ferningum hver. Gefið ykkur tíma til þess að spá í samsetningu lita og mynsturs til þess að finna hvað ykkur líst best á. Staflið bútunum saman í þeirri röð sem þið hyggist sauma þá saman.

*Það er gott að strauja bútana áður en þeir eru saumaðir saman.

3. Leggið ferningana frá fyrstu lengjunni saman, réttu á móti réttu í röðinni sem ákveðin var. Festið saman með títuprjónum. Saumið þá saman með 1 cm saumrými og fjarlægið títuprjónana. Saumið næstu lengju á sama hátt.

4. Saumið tilbúnar lengjur saman, réttu á móti réttu, hverja á fætur annari. Að því loknu ætti framstykkið að vera tilbúið.

5. Leggið fram og bakhlið saman, réttu á móti réttu og festið saman með títuprjónum . Klippið e.t.v. bakstykkið til ef það er stærra en framstykkið. Saumið fram og bakhlið saman með 1m cm. saumrými en skiljið eftir op. Snúið teppinu á réttuna í gegnum opið og saumið fyrir.

6. Saumið allan hringinn í kantinn á teppinu. Saumið e.t.v. nokkur spor í höndunum í gegnum bæði lögin á teppinu þar sem hornin mætast.

*Gangi ykkur vel og góða skemmtun.

Myndir og texti : Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir